Heilbrigðisstofnun Norðurlands tryggir öruggan rekstur allan sólarhringinn með Advania

Umfangsmikil heilbrigðisþjónusta

Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN, þjónustar risavaxið landsvæði sem nær yfir 23% af flatarmáli Íslands, með þremur stærstu starfsstöðvunum á Akureyri, Húsavík og Sauðárkróki. Svæðið er fjölsótt af ferðamönnum og fjarlægðirnar á milli eininga stofnunarinnar geta verið allt að tveggja og hálfs tíma akstur. Starfsemin stoppar aldrei, enda er stofnunin opin allan sólarhringinn, alla daga ársins.

 

Áskorunin

Fyrir svo dreifða og fjölbreytta starfsemi, sem spannar allt frá hjúkrunar- og sjúkradeildum til heilsugæslustöðva og farandsérfræðinga, þarf tæknin að standast miklar kröfur. Fjarlægðirnar gera það að verkum að fjarfundabúnaður hefur verið notaður frá stofnun HSN, og í dag reiðir stofnunin sig á Teams til að tengja saman framkvæmdastjórn og starfsfólk þvert á landsvæðið.

Kerfin sem HSN notar eru mörg og flókin, og fáir birgjar á markaði höfðu burði til að þjónusta jafn fjölþætta og krefjandi stofnun. Uppitími, öryggi og hraði urðu því lykilkröfur þegar leitað var að samstarfsaðila.

Lausnin

HSN útvistar nú allri framlínuþjónustu sinni til Advania, og allar hýsingar fara í gegnum fyrirtækið. Stofnunin rekur ekki lengur eigin tækjasali.

„Við rekum enga tækjasali, við erum búin að útvista öllu. Allar hýsingar fara núna í gegnum Advania. Það er mikill ávinningur í því fyrir okkur, í stað þess að fjárfesta í og reka eigin tækjasali," segir Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og stoðsviða hjá HSN.

Ávinningurinn af samstarfinu liggur ekki síst í breidd Advania. HSN heldur úti fjórum eigin sérfræðingum en getur sótt bakstuðning í stóran og fjölbreyttan hóp sérfræðinga hjá Advania þegar flóknari verkefni koma upp.

„Það er eitt af þeim gæðum sem við völdum við Advania, að þegar við erum að fást við ákveðin verkefni sem við þurfum að leysa þá er gott að geta farið inn í svona fjölbreyttan hóp eins og Advania er með. Þekkingin er traust og nútímaleg, en svo erum við líka með okkar fjóra sérfræðinga sem geta fengið öruggan bakstuðning frá Advania."

Árangur

Stofnunin er í stöðugri stafrænni þróun í samstarfi við Advania, meðal annars með innleiðingu RPA ferla og stafrænna eyðublaða, og er byrjuð að horfa til gervigreindar til að efla öryggi og þétta vinnuna enn frekar.

„Stofnunin okkar er þannig starfsemi að við erum opin allan sólarhringinn, sofum aldrei. Þess vegna er mikilvægt að uppitími sé traustur og mikill," segir Þórhallur.

„Helsti ávinningurinn hjá okkur er til dæmis nærvera, húsakynni og aðgengi að tæknimönnum," bætir hann við.

Ekki hefðbundið fyrirtæki

HSN er ekki hefðbundið fyrirtæki. Starfsemin nær yfir hjúkrunardeildir, sjúkradeildir, heilsugæslur og farandsérfræðinga, með flóknum og fjölbreyttum búnaði, og hún stoppar aldrei. Fyrir stofnun sem aldrei lokar er samstarfsaðilinn hluti af innviðunum sjálfum, og því skiptir mestu að hafa tæknistjóra og teymi sem þekkja stofnunina og eru í stakk búin til að leysa ný og áður óþekkt vandamál jafnóðum og þau koma upp.

Hafðu samband og við skoðum hvernig hægt er að styðja við þinn rekstur.

Kynntu þér hýsingu og rekstur