Niðurstöður og árangur
Ávinningurinn kom fljótt í ljós eftir innleiðingu nýju lausnarinnar. Reikningagerð er nú sjálfvirk og viðskiptavinir fá reikninga rafrænt, sem hefur einfaldað ferlið og dregið úr þörf fyrir útprentanir og handvirka vinnu.
Skýrslugerð og gagnaskil hafa einnig orðið mun skilvirkari þar sem upplýsingar eru nú aðgengilegar án frekari úrvinnslu. Gögn berast sjálfkrafa til ytri hagaðila sem eykur áreiðanleika og dregur úr líkum á mistökum.
Jafnframt hefur ný lausn styrkt rekstraröryggi fyrirtækisins verulega. Vandamál tengd óstöðugleika gagna og takmörkunum eldri lausnar eru úr sögunni og Stekkjarvík hefur nú traustan grunn sem styður betur við áframhaldandi þróun.
Reynsla Stekkjarvíkur sýnir hvernig einföld sjálfvirknivæðing lykilferla getur haft áhrif langt út fyrir sjálfa tæknina. Með því að draga úr handvirkri vinnu og styrkja upplýsingaflæði hefur fyrirtækið byggt upp öruggari og skilvirkari rekstur.