Fréttir - 18. febrúar 2020

Advania opnar í Danmörku

Advania hefur keypt danska félagið Kompetera og opnar nú starfstöð í Kaupmannahöfn. Advania getur því boðið alhliða þjónustu í upplýsingatækni á öllum Norðurlöndunum.

Advania hefur keypt danska félagið Kompetera og opnar nú starfstöð í Kaupmannahöfn. Advania getur því boðið alhliða þjónustu í upplýsingatækni á öllum Norðurlöndunum.

Advania hefur sótt fram á Norðurlöndunum undanfarin ár með kaupum og sameiningum við framsækin fyrirtæki í upplýsingatæknigeiranum. Kaupin á Kompetera eru liður í að efla starfsemi Advania um öll Norðurlönd. Nú getur fyrirtækið boðið alhliða rekstrarþjónustu í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Íslandi og Finnlandi. Starfsfólk Komepetera, alls þrjátíu talsins, er því boðið hjartanlega velkomið í starfslið Advania.
Vöxtur Advania á Norðurlöndum er ekki síst hugsaður til þess að veita viðskiptavinum sem þegar starfa á norrænum markaði, enn betri þjónustu.

„Með starfsemi í Danmörku höfum við náð markmiði okkar um að verða sannkallað norrænt fyrirtæki og nú stefnum við á að byggja ofan á þann 15% innri vöxt sem varð árið 2019. Það er frábært skref fyrir Advania að geta nú boðið upp á alhliða þjónustu á sviði upplýsingatækni á öllum Norðurlöndunum. Ekkert annað félag á þessu sviði getur það. Með kaupum á Kompetera eykst geta og þekking Advania á altækri rekstrar- og skýjaþjónustu til muna og við sjáum mörg tækifæri framundan,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi.

„Það er hvetjandi innblástur að verða hluti af svo framúrskarandi fyrirtæki sem Advania er. Með okkar nálgun og staðbundnu þekkingu náum við að fylla í lítið en þó mikilvægt skarð á dönskum markaði. Við erum himinlifandi með þetta tækifæri og hlökkum til bjartrar framtíðar saman,“ segir Carsten Weis framkvæmdastjóri Kompetera.

Fleiri fréttir

Fréttir
10.11.2020
Íslandsbanki, Advania, NTV og Promennt hafa tekið höndum saman til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en aðeins örfáar konur útskrifast árlega úr námi i kerfisstjórnun.
Blogg
04.11.2020
Dell Optimizer fylgir flestum nýjum fartölvum og borðtölvum frá Dell. Optimizer er sjálfvirk gervigreind sem lærir hegðun notandans, greinir hvernig hann vinnur og fínstillir vélina eftir þörfum svo notandinn geti einbeitt sér að þeim verkefnum sem skipta máli.
Blogg
29.10.2020
Tæknileg leitarvélabestun felur í sér að bæta, skrá (index) eða byggja upp frá grunni undirstöður vefsvæðis og bæta þar með læsileika þess. Hér að neðan má finna lista sem ekki er tæmandi en gefur einhverja hugmynd um það sem þarf að hafa í huga. .
Fréttir
29.10.2020
Hugbúnaðarsérfræðingurinn Arnór Geir Halldórsson hlaut á dögunum viðurkenningu frá Dynamicweb fyrir framúrskarandi starf á árinu.
Fréttir
30.09.2020
Eftir árangurslausa leit að lausn til halda árlega Haustráðstefnu Advania með stafrænum hætti, ákváðum við að smíða okkar eigin. Útkoman var fjölmennasta og best heppnaða ráðstefna okkar í 26 ár.
Fréttir
24.09.2020
Spjallmennið Fróði aðstoðar Íslandsbanka við að veita viðskiptavinum bankans betri þjónustu. Advania kom að hönnun Fróða en hann byggir á þaulreyndri spjallmennalausn sem nokkrir af stærstu bönkum Norðurlanda nýta sér.
Fréttir
10.09.2020
Framundan er vetur sem margir kvíða. Atvinnuleysi er hærra en oft áður. Heilu atvinnugreinarnar róa lífróður og enginn veit hvenær heimsfaraldurinn lognast útaf. Það sem við vitum þó er að undanfarna mánuði hefur upplýsingatæknin haldið samfélögum gangandi.
Blogg
08.09.2020
Nú er um að gera að setja sig í stellingar því Haustráðstefnan er handan við hornið. Við erum að tengja síðustu kaplana og spennan magnast.
Fréttir
03.09.2020
Haustráðstefna Advania hefur verið haldin árlega í aldarfjórðung. Ráðstefnan er sú elsta sinnar tegundar í Evrópu og einn stærsti tækniviðburður sem haldinn er á Íslandi.
Blogg
17.08.2020
Nokkur atriði til að hafa í huga til að spjallmenni skili góðri upplifun og þjónustu.
Fréttir
13.08.2020
Eftirlitskönnun Þjóðskjalasafns leiddi í ljós að skjalastjórn hjá opinberum stofunum sé stórlega ábótavant. Tilvalið er að nota Office 365 til rafrænna skila á gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands.
Fréttir
08.07.2020
Snjallmennið Vinný hefur hafið störf hjá Vinnumálastofnun og er til þjónustu reiðubúið á vef stofnunarinnar. Vinný notar gervigreind til að svara spurningum um þjónustu og starfsemi Vinnumálastofnunar.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.