Blogg - DD.09.YYYY

Árshátíð upplýsingatækninnar 2014

Við hjá Advania héldum okkar fjölmennustu Haustráðstefnu til þessa 12. september síðastliðinn. Hér eru nokkrir fyrirlestrar

Við hjá Advania héldum okkar fjölmennustu Haustráðstefnu til þessa 12. september síðastliðinn. Um 1.100 gestir troðfylltu Hörpuna þar sem í boði var að hlýða á 31 fyrirlestur - 27 almenna og fjóra lykilfyrirlesara. Það er skemmst frá því að segja að fyrirlestrarnir á ráðstefnunni voru bæði áhugaverðir og fjölbreyttir og fóru nokkrir þeirra langt fram úr væntingum, eða eins og einn ráðstefnugesturinn orðaði það: „Allir góðir og nokkrir frábærir“.

Fjölbreytni er orðið

Magnús Scheving frumkvöðull var fyrstur á svið. Hann er þekktur fyrir kraft og áræðni þegar hann kemur fram og það var einmitt það sem við hugsuðum þegar við settum saman dagskrána, að Maggi mundi vekja ráðstefnugesti svona í upphafi dags. Hann hélt skemmtilegt erindi um það hvernig hann hefur náð árangri í gegnum tíðina. Meginboðskapurinn var að ástríða, skýr sýn og seigla sé lykillinn að því að ná langt. Við getum því miður ekki sýnt fyrirlesturinn hans hér, en nokkrar myndir eigum við þó af kappanum og gestunum í salnum.

Hægt er að finna myndasyrpu frá ráðstefnunni á Facebook síðu Advania.

Google og tölvuskýin

Þá var komið að Google manninum sem margir höfðu beðið eftir. Jesper Ritsmer Stormholt stýrir Google for Work á Norðurlöndunum var næstur lykilfyrirlesara á svið. Hann fór á kostum þegar hann sýndi hvernig raddstýring á snjallsíma getur auðveldað okkur lífið. Jesper fór einnig ítarlega yfir þann ávinning sem fyrirtæki geta haft af hagnýtingu tölvuskýja. Hreint magnað show hjá kappanum.

Allt nettengt í henni veröld 

Jim Grubb nokkur gerði sér lítið fyrir og flaug þvert yfir hnöttinn til að vera með okkur á Haustráðstefnunni. Hann er hvorki meira né minna en Chief Demonstration Officer hjá Cisco og fjallaði um hvaða þýðingu það hefur þegar öll tæki, byggingar, farartæki og já bara allt í veröldinni verður nettengt. Gagnamagn mun stóraukast, nýir möguleikar opnast við stjórnun fyrirtækja, ýmiss kostnaður minnkar – en mesta áskorunin verður í að tryggja öryggi allra þeirra upplýsinga sem til verða við þessa byltingu. 

 

Hugvekja um nýsköpun

Þorsteinn B. Friðrikssson forstjóri og stofnandi Plain Vanilla Games hélt síðasta lykilfyrirlestur dagsins. Hann lýsti því hvernig það gekk að fá fjármögnun á QuizUp leiknum hjá bandarískum fjárfestum og hélt hugvekju um hvernig byggja má upp betra nýsköpunarumhverfi fyrir íslensk fyrirtæki. Það var mál manna að Þorsteinn hefði farið á kostum í sínum flutningi og sem betur fer gaf hann okkur leyfi til að birta fyrirlesturinn svo þú getur notið hér. 
 
 

Pössum tölvurnar og okkur sjálf 

Í öryggiskönnun sem fyrirtækið Syndis gerði meðal íslenskra fyrirtækja reyndust 71% tölva vera með alvarlegan öryggisveikleika. Theódór R. Gíslason, sérfræðingur í tölvuöryggismálum flutti hugvekju um upplýsingaöryggi og sagði frá könnun á stöðu öryggismála hjá íslenskum fyrirtækum. Sláandi niðurstöður blöstu við fólki og sennilega hafa margir hugsað sinn gang eftir að Teddi lauk máli sínu.

 

Meira um þrjóta á netinu

Niðritími vefsetra og upplýsingakerfa getur kostað fyrirtæki stórfé. Í vaxandi mæli eru það tölvuglæpamenn sem gera svokallaðar DdoS árásir sem valda niðritíma til að valda slíkum skaða. Eins ótrúlega og það hljómar þá verða jafnvel góðgerðarfélög fyrir slíkum árásum. Matt Mahvi frá Staminus Communications fór ítarlega yfir hvernig má hindra slíkar árásir. 



Skapaðu fyrirtækinu þínu sérstöðu

Paula Gould er markaðsstjóri GreenQloud, en fyrirtækið hefur markað sér mikla sérstöðu á heimsvísu með umhverfisvænum hýsingarlausnum. Paula fjallaði einmitt um hvernig sprotafyrirtæki getur markað sér skýra sérstöðu á markaði og af hverju það er nauðsynlegt fyrir einmitt þau.



Tæknivæddir bjargvættir

Upplýsingatækni er þýðingarmikill þáttur í árangursríku starfi hjálpar- og björgunarsveita á Íslandi. Það var Guðbrandur Örn Arnarson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu sem fór yfir dæmi um þetta og sagði frá því hvað væri framundan og hvernig mætti nýta upplýsingatækni í björgunarstarfi. 


Björgum mannslífum með þrívíddarprentun 

Með því að búa til útprentuð þrívíddarmódel fyrir flóknar og erfiðar skurðaðgerðir má stytta aðgerðartíma, draga úr kostnaði og bjarga mannslífum. Paolo Gargiulo aðstoðarprófessor hjá HR, Íris Dröfn Árnadóttir, MA nemi í heilbrigðisverkfræði og Dr. Bjarni Torfason yfirlæknir á Hjarta-, lungna- og augnskurðdeild á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi fluttu eftirminnilegan fyrirlestur um þetta efni. Fréttamönnum þótti þessi fyrirlestur nokkuð áhugaverður og bjuggu til litla frétt um málið.



Greiðsla án snertingar ku vera framtíðin

Eskil Krag hjá Gemalto talaði um snertilausar kortagreiðslur og hans sögn verða þær stór hluti af greiðslumiðlun framtíðarinnar. Maður er svona ennþá að gera sér í hugarlund hvernig þetta muni virka, en það er allt að gerast í heimi upplýsingatækninnar og því ekkert ómögulegt.

 

Upplýsingatækniverkefni sem stóðst allar áætlanir, ótrúlegt en satt! 

Reginald Curtis er forstjóri NAAFI og í kynningu sinni útskýrði hann hvernig fyrirtækið umbreytti og útvistaði allri upplýsingatækni. Með þessum aðgerðum tókst fyrirtækinu að spara verulegar fjárhæðir.  Lykillinn að þessu var að stjórnendur NAAFI tóku virkan þátt í verkefninu og voru allir staðráðnir í því að láta það takast.



Upplýsingatæknin á að vera fyrir alla!

Birkir Gunnarsson hefur farið á kostum á Advania blogginu með snörpum pistlum um mikilvægi aðgengis að upplýsingatækni. Við fengum hann því til að koma til landsins og segja okkur aðeins frá þessu spennandi máli á Haustráðstefnunni.  Hann benti m.a. á arðsemi þess og mikilvægi að fyrirtæki sinni fötluðu fólki þegar þau nota upplýsingatækni til að nálgast sína viðskiptavini. Klárlega málefni sem verður bara heitara með tímanum.



Núna verður vit í vélunum

Yngvi Björnsson prófessor í tölvunarfræði fjallaði um gervigreind en hann er einn af helstu sérfræðingum landsins í þessum fræðum og þó víðar væri leitað. Í fyrirlestri sínum fór hann yfir hvernig gervigreind getur nýst í viðskiptalífinu. Í máli hans kom fram að hún muni með tíð og tíma hjálpa til eða taka jafnvel við ákvörðunartöku hjá fyrirtækjum. Það flögraði að manni að sænski þátturinn „Alvöru fólk“ sem sýndur er á RÚV, væri kannski aðeins byggður á sambærilegum rannsóknum?

Nema hvað – við  hjá Advania vorum hæst ánægð með daginn og nokkuð stolt af þéttri og innihaldsríkri dagskrá. Við hlökkum til að halda Haustráðstefnu að ári  með tilheyrandi risaskammti af þekkingarmiðlun og skemmtun – allt til að þú og þitt fyrirtæki getir tekið eitthvað bitastætt með þér „heim“ . 



Fleiri fréttir

Fréttir
23.02.2025
Advania hefur verið samstarfsaðili Héðins á þeirra stafrænu vegferð og meðal annars aðstoðað með netöryggi, sjálfvirknivæðingu ferla, betrumbætur á flæði og fleira.
Fréttir
07.02.2025
Í dag fer fram ráðstefnudagur hinnar árlegu UTmessu í Hörpu. Á UTmessunni koma saman helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins til að deila nýjungum, hvetja fólk til að kynnast iðnaðinum og sýna hvað tæknin getur gert fyrir daglegt líf. Þetta er í 15. skipti sem UTmessan er haldin.
Blogg
04.02.2025
Í yfir 20 ár hefur Wi-Fi tæknin haldið heiminum tengdum og fylgt sívaxandi þörfum fyrirtækja og notenda. Nú eru þráðlaus netkerfi mikilvægari en nokkru sinni fyrr, og með Wi-Fi 7 er tekin enn stærri skref í átt að hraðari, stöðugri og afkastameiri nettengingum.
Blogg
03.02.2025
DeepSeek-R1 líkanið er nú fáanlegt sem NVIDIA NIM og keyrir á NVIDIA HGX H200 þjónum, sem gerir forriturum kleift að gera tilraunir á öruggan hátt með gervigreind.
businesscentral.advania.is, Blogg
27.01.2025
Á þeim tíu árum sem ég hef verið viðloðandi sölu, þjónustu, þróun og markaðssetningu á viðskiptabókhaldskerfum hef ég átt aragrúa samtala við viðskiptavini um allt á milli himins og jarðar er við kemur þessum málaflokki.
Fréttir
21.01.2025
Liva er ný bókunarlausn frá Advania sem kynnt var til leiks í ferðaþjónustuvikunni 2025. Ágúst Elvarsson rekstarstjóri hjá Jökulsárlóni ehf hefur tekið þátt í þróuninni á Liva frá upphafi. Með því að taka Liva í notkun getur hann skipt út tveimur, ef ekki þremur, mun flóknari og þyngri kerfum.
Fréttir
15.01.2025
Í dag fer fram Mannamót Markaðsstofa landshlutanna í Kórnum í Kópavogi sem er mikilvægur hluti af Ferðaþjónustuvikunni á ári hverju.  Af þessu tilefni taka Advania á Íslandi og Markaðsstofur landshlutanna höndum saman og standa fyrir Advania LIVE beinni útsendingu frá Kórnum þar sem rætt verður við aðila innan ferðaþjónustunnar og fleiri góða gesti.
Fréttir
09.01.2025
NVIDIA kynnti nýlega Project DIGITS. Gervigreindar-ofurtölvu sem veitir rannsakendum, gagnavísindamönnum og nemendum um allan heim aðgang að gervigreindarlausninni NVIDIA Grace Blackwell. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt afl er beislað í boxi sem passar á ósköp venjulegt skrifborð.
Blogg
07.01.2025
Sem netöryggisráðgjafi rekst ég oft á fyrirtæki sem treysta á Linux netþjóna til að keyra mikilvæg kerfi og forrit, en á sama tíma eru þau ekki fullviss um öryggi og stöðugleika þeirra. Hver kannast ekki við Linux þjóna sem hafa verið keyrandi í mörg hundruð daga án þess að vera endurræstur? Það má ekki endurræsa því þetta einfaldlega virkar og þekkingin til að bilanagreina ef eitthvað bilar er ekki til staðar. Þá er gott að spyrja sig, hver er raunveruleg staða öryggis, uppfærslna og viðhalds á þínum Linux netþjónum?
Fréttir
06.01.2025
Advania á Íslandi er nú í hæsta mögulega flokki samstarfsaðila NVIDA. Þetta markar tímamót í samstarfi fyrirtækjanna og opnar á frekari möguleika.
Blogg
19.12.2024
Advania hefur ákveðið að innleiða nýjar breytingar til að styðja verðandi og nýbakaða foreldra á þessu merkilega, frábæra en krefjandi tímabili í kringum barnseignir.  Með þessum breytingum vill fyrirtækið tryggja að starfsfólk fái þann stuðning sem það þarf til að takast á við ný hlutverk og ábyrgðir sem fylgja foreldrahlutverkinu.
Blogg
12.12.2024
Af síðustu 11 dögum þessa árs eru aðeins tveir heilir vinnudagar. Þetta felur í sér knappan tíma fyrir launasérfræðinga til útreikninga á launum í desember. Hér fer Berglind Lovísa Sveinsdóttir, vörustjóri H3, yfir nokkur bjargráð fyrir launasérfræðinga og hvernig hægt er að nýta H3 launakerfið með sem bestum hætti þannig að meiri tími skapast fyrir annað í kringum hátíðarnar.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.