Blogg - DD.10.YYYY

Hvað er þetta Oracle?

Fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins byggir á Oracle E-Business Suite frá Oracle Corporation, sem er stærsta hugbúnaðarfyrirtæki veraldar þegar kemur að lausnum fyrir stórar og flóknar rekstrareiningar með dreifðan rekstur og miklar kröfur til upplýsingatækni.

Oracle fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins hafa verið í kastljósi fjölmiðla undanfarna daga. Að gefnu tilefni hefur undirritaður sett saman nokkra punkta um þetta viðamikla kerfi, sem hefur um ellefu ára skeið þjónað tugþúsundum notenda.

Aðalatriðin í þessari samantekt eru eftirfarandi.

  • Oracle hefur um 115 þúsund sérfræðinga í vinnu við framþróun sinna lausna
  • Oracle fjárhags- og mannauðslausnir eru notaðar af 65 þúsund fyrirtækjum
  • Kerfið hefur verið innleitt hjá 213 stofnunum hér á landi og hefur 16 þúsund notendur
  • Oracle-innleiðingin er gríðarlega umfangsmikil og slík verkefni eru aldrei hnökralaus

Öflugur bakhjarl

Fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins byggir á Oracle E-Business Suite frá Oracle Corporations, sem er stærsta hugbúnaðarfyrirtæki veraldar þegar kemur að lausnum fyrir stórar og flóknar rekstrareiningar með dreifðan rekstur og miklar kröfur til upplýsingatækni. Oracle Corp. er alþjóðlegt risafyrirtæki, sem veltir árlega um 4.600 milljörðum króna og starfslið fyrirtækisins telur um 115 þúsund manns. Fyrirtækið hefur reynst ómetanlegur og öflugur bakhjarl í þessu verkefni.

65 þúsund viðskiptavinir

Fjárhags- og mannauðskerfi Oracle eru í notkun hjá 65 þúsund fyrirtækjum og stofnunum á heimsvísu. Þar á meðal eru Alcoa, AT&T, Facebook, France Telecom, Fujitsu, Hyundai, LG Electronics, McDonald's, skoska ríkið, Toyota, Unisys og Virgin. Þessir aðilar velta tugþúsundum milljarða króna, starfsfólk þeirra er talið í milljónum og viðskiptavinir skipta hundruðum milljóna.

Kemur víða við sögu

Oracle kemur við sögu á flestum sviðum í starfsemi hins opinbera. Það inniheldur yfir 60 kerfishluta og 400 séraðlagaðar einingar.
Þrír stærstu hlutar kerfisins skiptast í fjárhag, mannauð og vörustýringu.

  • Fjárhagur; reikningar, afstemmingar, uppgjör, samþykktir, skjöl og verkefni
  • Mannauður; laun, ráðningarferli, fræðsla, vaktir og viðvera
  • Vörustýring; birgðir, framleiðsla, innkaup, sala, útboð, verslun og eignaumsjón

Framþróun Oracle á Íslandi

Ör framþróun kerfisins og uppfærslur á því þýða að kerfið sinnir víðtækara hlutverki í dag, en gert var ráð fyrir í upphafi. Slíkt er vel þekkt í umfangsmiklum upplýsingatækniverkefnum, nýir möguleikar hafa opnast og þarfir notenda breyst. Frá því að kerfið var tekið í notkun hafa verið þróaðar fjöldi svokallaðra sérlausna og mikil vinna verið lögð í framþróun kerfisins, í samræmi við óskir verkkaupa. Grunnkerfi Oracle E-Business Suite hefur farið í gegnum tvær umfangsmiklar uppfærslur sem fólu í sér nær algera endurnýjun á bæði innviðum þess og notendaviðmóti.

Margvíslegur ávinningur

Oracle-kerfið hefur skilað hinu opinbera margvíslegum ávinningi, enda einstakt að þjóðríki hafi heildaryfirsýn yfir fjárhag sinn og mannauð í einni samþættri lausn. Fjármálaráðuneytið sjálft hefur fullyrt að innleiðing á Oracle-kerfinu hafi stórlega bætt fjárhagsupplýsingar ríkisins til bæði stjórnunar og uppgjörs.

Náið samstarf

Ljóst er að í rekstri, þróun og þjónustu við upplýsingatæknikerfi, sem er jafn umfangsmikið og fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins, munu ávallt koma upp frá einum tíma til annars einhver rekstrar- og öryggisfrávik. Sumt má rekja til grunnkerfisins sjálfs og annað til þeirra sem vinna við kerfið – bæði þjónustuaðila og notenda. Viðfangsefni sem lúta að þessu hafa alla tíð verið leyst jafnóðum, í nánu samstarfi viðskiptavinar, Advania og Oracle. Það er ekkert launungarmál að æskilegt er að sem fæst slík frávik og villur komi upp.

Sólarhringsvakt sérfræðinga

Sérstök sólarhringsvakt er á Oracle-kerfinu, allt árið um kring. Það þýðir að alltaf eru sérfræðingar á vakt, hvort heldur sem er frá Oracle eða Advania, sem taka á þeim rekstraratvikum sem upp koma. Alþjóðlegar gæða- og öryggisvottanir Advania samkvæmt ISO 9001 og ISO 27001 tryggja sömuleiðis að öll vinna kringum Oracle-kerfið er unnin af fagfólki í fremstu röð, sem nýtur stuðnings frá hinum 115 þúsund sérfræðingum sem Oracle hefur í vinnu.

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.