Fréttir - 13. desember 2021

Sigurvegarar í firmakeppni CS:GO

Lið Advania fór með sigur úr býtum í firmakeppni Elko í CS:GO sem haldin var í Arena á föstudag. Advania tryggði sigurinn eftir að hafa lagt lið Vodafone í úrslitaviðureigninni.


Lið Advania fór með sigur úr býtum í firmakeppni Elko í CS:GO sem haldin var af Rafíþróttasambandi Íslands í Arena á föstudag. Advania tryggði sigurinn eftir að hafa lagt lið Vodafone í úrslitaviðureigninni. 


Keppendur Advania voru Einar „Zim“ Ragnarsson, Sigurður Unnar „Goldenbullet“ Hauksson, Höður “KH2“ Anton Diego, Vignir „Þykknir“ Jóhannsson Rist og Jónas Helgi „Jonascajones“ Þórisson. 

Taktísk og yfirveguð nálgun Advania liðsins kláraði leikinn í tveimur lotum en keppt var um besta samanlagða árangur í þremur lotum. 

Einar Ragnarsson hefur spilað leikinn í 16 ár en sagði árangurinn hafa komið sér á óvart; „Líklega kom þetta bara á óvart því ég er persónulega illa brenndur af því að lenda alltaf í öðru sæti. Keppnin gekk smurt fyrir sig og það var frábært að fá að spila úrslitaleikinn í geggjaðari aðstöðu í Arena. Ég hef spilað fullt af mótum svo það var fátt nýtt fyrir mér. Hins vegar fannst mér magnað að fylgjast með liðsfélögunum sem voru margir að spila sinn fyrsta alvöru úrslitaleik og spiluðu eins og það væri engin pressa á þeim og voru gjörsamlega frábærir alla seríuna.“

„Upplifunin á Arena í úrslitum á lani með bæði lið í sitthvoru VIP herbergjum var gríðarlega spennandi. Herbergin sneru bak í bak og maður heyrði öskrið á milli herbergja þegar við töpuðum lotum og þeir heyrðu sannarlega í okkur þegar við unnum lotur. Geggjað mót, geggjað venue og kirsuberið á toppnum var auðvitað ekki bara að sigra, heldur að sigra í framlengingu,“ segir Jónas Helgi Þórisson.

 

Mynd: Frá vinstri: Einar Ragnarsson, Jónas Helgi Þórisson, Höður Anton Diego og Sigurður Unnar Hauksson. Á myndina vantar Vigni Jóhannsson Rist. 

Fleiri fréttir

Blogg
04.11.2020
Dell Optimizer fylgir flestum nýjum fartölvum og borðtölvum frá Dell. Optimizer er sjálfvirk gervigreind sem lærir hegðun notandans, greinir hvernig hann vinnur og fínstillir vélina eftir þörfum svo notandinn geti einbeitt sér að þeim verkefnum sem skipta máli.
Blogg
29.10.2020
Tæknileg leitarvélabestun felur í sér að bæta, skrá (index) eða byggja upp frá grunni undirstöður vefsvæðis og bæta þar með læsileika þess. Hér að neðan má finna lista sem ekki er tæmandi en gefur einhverja hugmynd um það sem þarf að hafa í huga. .
Fréttir
29.10.2020
Hugbúnaðarsérfræðingurinn Arnór Geir Halldórsson hlaut á dögunum viðurkenningu frá Dynamicweb fyrir framúrskarandi starf á árinu.
Fréttir
30.09.2020
Eftir árangurslausa leit að lausn til halda árlega Haustráðstefnu Advania með stafrænum hætti, ákváðum við að smíða okkar eigin. Útkoman var fjölmennasta og best heppnaða ráðstefna okkar í 26 ár.
Fréttir
24.09.2020
Spjallmennið Fróði aðstoðar Íslandsbanka við að veita viðskiptavinum bankans betri þjónustu. Advania kom að hönnun Fróða en hann byggir á þaulreyndri spjallmennalausn sem nokkrir af stærstu bönkum Norðurlanda nýta sér.
Fréttir
10.09.2020
Framundan er vetur sem margir kvíða. Atvinnuleysi er hærra en oft áður. Heilu atvinnugreinarnar róa lífróður og enginn veit hvenær heimsfaraldurinn lognast útaf. Það sem við vitum þó er að undanfarna mánuði hefur upplýsingatæknin haldið samfélögum gangandi.
Blogg
08.09.2020
Nú er um að gera að setja sig í stellingar því Haustráðstefnan er handan við hornið. Við erum að tengja síðustu kaplana og spennan magnast.
Fréttir
03.09.2020
Haustráðstefna Advania hefur verið haldin árlega í aldarfjórðung. Ráðstefnan er sú elsta sinnar tegundar í Evrópu og einn stærsti tækniviðburður sem haldinn er á Íslandi.
Blogg
17.08.2020
Nokkur atriði til að hafa í huga til að spjallmenni skili góðri upplifun og þjónustu.
Fréttir
13.08.2020
Eftirlitskönnun Þjóðskjalasafns leiddi í ljós að skjalastjórn hjá opinberum stofunum sé stórlega ábótavant. Tilvalið er að nota Office 365 til rafrænna skila á gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands.
Fréttir
08.07.2020
Snjallmennið Vinný hefur hafið störf hjá Vinnumálastofnun og er til þjónustu reiðubúið á vef stofnunarinnar. Vinný notar gervigreind til að svara spurningum um þjónustu og starfsemi Vinnumálastofnunar.
Fréttir
26.06.2020
Veflausnir Advania hafa smíðað nýjan sjóðfélagavef fyrir lífeyrissjóðinn Gildi. Sjóðfélagar hafa nú greiðari aðgang að upplýsingum um réttindi í samtryggingardeild Gildis, inneign í séreignadeild, stöðu lána, réttindi í öðrum lífeyrissjóðum og yfirlit yfir iðgjaldagreiðslur.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.