Blogg - 23.6.2015 17:14:00
Smáþjóðaleikarnir tókust einstaklega vel
Upplýsingatæknin lék lykilhlutverk á Smáþjóðaleikunum sem ÍSÍ hélt í byrjun júní.
16. Smáþjóðaleikarnir fóru fram á Íslandi dagana 1. – 6. júní. Umsjón með leikunum hafði Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) ásamt samstarfsaðilum. Tæplega 800 keppendur frá 9 löndum tóku þátt í leikunum, en keppt var í 11 íþróttagreinum. Alþjóðlegt íþróttamót af þessu tagi er umfangsmikið verkefni, en alls komu 22 starfsmenn ÍSÍ, sérsambönd ÍSÍ, Reykjavíkurborg, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Íþróttabandalag Reykjavíkur og 1.170 sjálfboðaliðar að framkvæmdinni. Átta íþróttagreinar fóru fram í Laugardalnum, en Ísland hefur þá sérstöðu að geta boðið upp á eins konar „Ólympíuþorp“ þegar kemur að staðsetningu íþróttamannvirkja. Yfir 30.000 áhorfendur mættu á leikana.
Upplýsingatæknin lék lykilhlutverk
Það er ekki hægt að halda leika af þessari stærð nema með öflugri upplýsingatækni. Advania var einn af Gullsamstarfsaðilum leikanna og þaðan fékk ÍSÍ megnið af tæknibúnaði, svo sem borðtölvur, fartölvur, skjái, prentara og tvær stórar fjölnota vélar (ljósritunarvél, skanni og prentari í einu tæki). Starfsmenn Advania komu að hluta til að uppsetningu á þessum búnaði. Það er skemmst frá því að segja að samstarf ÍSÍ og Advania gekk afar vel. ÍSÍ birti einnig öll úrslit og aðrar upplýsingar á heimasíðu á skjám í hverju íþróttamannvirki. Þessi nýbreytni mæltist afar vel fyrir hjá gestum, starfsfólki leikanna og þátttakendum.