Á myndinni má sjá fulltrúa Advania taka við LS Retail Diamond Partner viðurkenningunni á LS conneXion 2026 ásamt Kristjáni Jóhannssyni forstjóra LS Retail og Carsten Wulff VP LS Retail í Evrópu.
Fréttir - 6.5.2026 07:00:00Advania er LS Retail Diamond Partner fjórða árið í röð
Advania hefur nú hlotið viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail.
Viðurkenningin var veitt á árlegri ráðstefnu LS Retail, conneXion, sem að þessu sinni var haldin í Wiesbaden í Þýskalandi og er þetta fjórða árið í röð sem Advania á Íslandi hlýtur þessa viðurkenningu. LS Retail Partner Awards eru veitt til samstarfsaðila sem skara fram úr hvað varðar vöxt, fagmennsku og árangur í innleiðingum lausna LS Retail.
,,Að halda Diamond Partner stöðu í fjögur ár í röð er sterk staðfesting á þeirri djúpu tæknilegu þekkingu, reynslu og metnaði sem Advania teymið býr yfir. Viðurkenningin endurspeglar auðvitað metnað Advania til að skila lausnum af hæsta gæðaflokki sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini okkar.,' segir Hugi Freyr Einarsson forstöðumaður Business Central hjá Advania um viðurkenninguna.
Stærsta viðurkenningin til samstarfsaðila
Árið 2026 náðu 20 samstarfsaðilar Gold stöðu, 22 Platinum stöðu og aðeins 34 samstarfsaðilar Diamond stöðu, sem er hæsta viðurkenning LS Retail veitir til sinna samstarfsaðila.
LS Retail býr yfir einu stærsta samstarfsaðilaneti innan Microsoft Dynamics samfélagsins með yfir 300 vottaða samstarfsaðila í 157 löndum. Þeir gegna lykilhlutverki í sölu, innleiðingu og þjónustu lausna LS Retail og tryggja þannig staðbundna sérþekkingu og vandaða þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
,,Gott samstarf við LS Retail og viðskiptavini spilar einnig stóran þátt í viðurkenningunni og hlökkum við til að halda því áfram',' segir Sigurður Unnar Hauksson vörustjóri LS Retail hjá Advania.
Nánari upplýsingar um LS Retail Partner Awards 2026 og alla þá samstarfsaðila sem hlutu viðurkenningu má finna í tilkynningu frá LS Retail.
Advania er traustur sölu- og þjónustuaðili LS Retail á Íslandi og gegna lausnir LS Retail lykilhlutverki í heildarlausnum Advania fyrir verslunargeirann. Lausnirnar ná yfir allt frá afgreiðslu- og kassakerfum yfir í vefverslanir, sjálfsafgreiðslu, birgða- og innkaupastýringu og aðrar samþættar lausnir sem styðja við nútímalegan verslunarrekstur, bæði fyrir stórar og smáar verslanir.
Advania er stolt af þessum árangri og þakkar LS Retail fyrir traustið - sem og viðskiptavinum og starfsfólki fyrir framúrskarandi samstarf og árangur sem gerir þetta mögulegt, ár eftir ár.