Högni Hallgrímsson fór meðal annars yfir það hvernig fyrirtæki geta sparað sér mikla endurtekna handavinnu með réttri notkun tækninnar.

Fréttir, businesscentral.advania.is - 12. mars 2026

Gervigreindin tók yfir Viðskiptakerfadag Advania

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Árlegur Viðskiptakerfadagur Advania 2026 fór fram á Hilton í gær. Um 400 gestir mættu þar og sóttu sér þekkingu um fjölbreyttar viðskiptalausnir, nýjungar og tækifæri í stafrænni vegferð fyrirtækja.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var Kit Ingwersen frá Microsoft og fór hún í erindi sínu meðal annars yfir hvernig gervigreindarerindrekar geta gjörbylt því hvernig við vinnum. Kit sagði það skýrt að það væri ekki lengur spurning hvort stjórnendur tækju þetta skref, heldur hvenær.

Áskorunin sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir núna að hennar mati er nefnilega ekki hvort það eigi að innleiða erindreka í reksturinn, heldur hversu hratt og hversu meðvitað það er gert.

„Spurningin er ekki hvort gervigreindarerindrekar muni móta reksturinn þinn. Raunverulega spurningin er, hversu markvisst þú ferð í þessa vegferð. Tengir þú erindreka ofan á núverandi ferla? Eða endurhugsar þú alveg hvernig fyrirtækið þitt starfar?“

Auðvitað gaf Kit líka innsýn í allt það sem er nýtt og spennandi fram undan hjá Microsoft og það sem vorið mun bjóða upp á.

Á sameiginlegu línunni kom einnig fram Högni Hallgrímsson forstöðumaður gervigreindar og sjálfvirkni hjá Viðskiptalausnum Advania. Hann sýndi nokkur dæmu um það hvernig notkun tækninnar hefur sparað fyrirtækjum hér á landi tíma, lækkað kostnað, dregið úr handavinnu, fækkað villum í skráningum og einfaldað ferla.

Eftir hlé skiptist ráðstefnan í þrjár línur, Business Central, F&O og Power Platform. Dagurinn endaði svo á sameiginlegu kokteilboði og góðum samtölum á sýningarsvæði ráðstefnunnar.

Fleiri fréttir

Blogg
12.10.2026
Fleiri bókanir og fleiri gestir eru góðar fréttir. En vöxtur skilar sér ekki alltaf í betri afkomu. Oft fylgir honum meiri handavinna og meira álag á starfsfólk, án þess að framlegðin eða upplifun gesta batni að sama skapi.
Blogg
12.10.2026
Í mörgum fyrirtækjum fer stór hluti markaðs- og sölukostnaðar í að ná til nýrra viðskiptavina. Það er skiljanlegt. Vöxtur er oft mældur í nýjum samningum, nýjum viðskiptum og nýjum tækifærum. Á sama tíma gleymist stundum að stærstu vaxtartækifærin liggja oft hjá þeim viðskiptavinum sem eru þegar í viðskiptum.
Fréttir
08.10.2026
Advania hefur hlotið verðlaunin Innovation Partner of the Year frá Omdia fyrir gervigreindarstefnu félagsins og þróun Advania ALT. Tilkynnt var um verðlaunin á Canalys Forum EMEA í Barcelona í dag.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.