Ingunn Guðmundsdóttir mannauðsstjóri Advania. Mynd/Hörður Sveinsson.
Fréttir - 30. október 2026Ingunn Guðmundsdóttir nýr mannauðsstjóri Advania
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Ingunn hefur víðtæka reynslu af mannauðsmálum, stjórnun og stefnumótun. Hún er með BA-gráðu í stjórnmála- og kynjafræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í stafrænni þróun og stefnumiðaðri stjórnun frá Hyper Island. Áður en Ingunn kom til Advania starfaði hún sem ráðgjafi í stjórnun, stefnumótun og jafnréttismálum, meðal annars fyrir Öldu (áður Empower), Arcur og Capacent.
„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og spennt fyrir þeim tækifærum og verkefnum sem fram undan eru. Hjá Advania hefur verið byggð upp sterk menning þar sem fólkið okkar er í forgrunni. Ég hlakka til að byggja áfram á þeim góða grunni og vinna að því að áherslur okkar í mannauðsmálum styðji við stefnu og áframhaldandi árangur Advania,“ segir Ingunn.
„Ingunn hefur sýnt í störfum sínum að hún er afar fær stjórnandi og því vel að því komin að leiða þennan mikilvæga málaflokk í fyrirtækinu. Ég er sannfærð um að hún blómstri í nýju hlutverki og leiði farsællega þá faglegu vinnu sem unnin er í mannauðsteyminu,“ segir Erna Björk Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála, mannauðs og samskipta hjá Advania.