Blogg - 4. febrúar 2026

Þegar gervigreindarþróun færist aftur nær þróunarteyminu

Þórður Jensson
forstöðumaður hjá innviðalausnum Advania

Eftir því sem þróunarteymi vinna meira að gervigreindarlausnum hefur þörfin fyrir öfluga örgjörva og GPU aukist verulega. Til að mæta þessari þörf hafa mörg teymi fært þróunarumhverfi sín yfir í skýjaþjónustur sem sérhæfa sig í HPC og gervigreindarvinnslu. Það er skiljanlegt, skýið býður upp á skjótan aðgang að afli, sveigjanleika og möguleika á að skala upp á stuttum tíma.

En þegar verkefni þroskast og færast úr tilraunastigi yfir í daglega þróun breytist kostnaðarmódelið.

Reynslan sýnir að vinnslur sem tengjast gervigreind eru oft mjög frekar á örgjörva, GPU, minni og diskalag. Gagnavinnsla, tilraunakeyrslur og síendurteknar prófanir nýta yfirleitt allan þann vélbúnað sem er í boði og keyra í löngum lotum fremur en stuttum toppum. Þegar slíkar vinnslur eru keyrðar í skýjaumhverfi sem rukkar eftir álagi vex kostnaðurinn hratt, sérstaklega þegar fleiri þróunaraðilar taka þátt eða verkefnið stækkar.

Þegar sýndarvélar eru stækkaðar eða þeim fjölgað er því ekki óalgengt að rekstrarkostnaður fari að nálgast eða fara fram úr fjárfestingarkostnaði við sambærilegan búnað á staðnum.

Þarna er ekki verið að tala um að hætta að nota skýið, heldur að finna jafnvægi þar sem þyngstu vinnslurnar eru keyrðar þar sem það er hagkvæmast.

Stór gagnasett kalla á nálægð við vélbúnað

Vinnslur sem tengjast gervigreindarþróun setja miklar kröfur á undirliggjandi innviði. Þær lesa og skrifa gjarnan mjög grimmt á diskalag, nýta minni til fulls og halda örgjörvum og GPU-um stöðugt undir álagi. Slík hegðun passar oft betur við staðbundinn búnað þar sem auðveldara er að tengjast gögnum, stýra afköstum, tryggja fyrirsjáanlegan kostnað og lágmarka biðtíma.

Þegar vinnslan er færð nær þróunarteyminu sjálfu skapast einnig betri yfirsýn yfir auðlindanotkun og auðveldara verður að prófa og breyta án þess að hver breyting hafi bein áhrif á skýjareikninginn.

Gervigreindarafl á skrifborðinu

Ein nálgun sem hefur verið að ryðja sér til rúms er að færa hluta vinnslunnar niður á vinnu-/ útstöðvastig. Þar getur öflugur búnaður gegnt hlutverki staðbundins reiknihnúts (compute node) fyrir þróunarteymi.

Dell Pro Max GB10 er dæmi um slíkan búnað. Vélin byggir á NVIDIA Grace örgjörva og NVIDIA Blackwell GPU og færir áður gagnaversbundið afl nær þróunarteyminu sjálfu. Í stað þess að hugsa um þetta sem hefðbundna vinnustöð má frekar líta á þetta sem persónulega gervigreindarvél sem styður við þunga útreikninga og hraðar tilraunir.

Það sem gerir slíka nálgun áhugaverða er meðal annars:

  • Öryggi gagna

    Gögn geta verið unnin innan eigin umhverfis án þess að þurfa stöðugt að flytja þau út fyrir innviði fyrirtækisins.

  • Hraðari þróunarhringir

    Ítranir og prófanir geta keyrt samstundis án þess að bíða eftir úthlutun á skýjaauðlindum eða takast á við breytilega biðtíma.

  • Betri kostnaðarstýring

    Hluti rekstrarkostnaðar færist yfir í fyrirsjáanlega fjárfestingu í búnaði, sem getur verið hagkvæmara þegar vinnslan er stöðug og umfangsmikil.

Jafnvægi milli skýja og staðbundins búnaðar

Innviðir fyrir gervigreind eru í auknum mæli að þróast í átt að blandaðri nálgun þar sem skýjaumhverfi og staðbundinn vélbúnaður vinna saman. Skýið hentar vel þegar þörf er á hraðri stækkun eða tímabundnu afli, en þegar þróunarvinnsla verður stöðug og þung getur verið skynsamlegt að færa hluta hennar nær notandanum sjálfum.

Fyrir mörg teymi snýst næsta skref því ekki um að bæta við fleiri skýjaauðlindum, heldur um að hanna innviði sem ná betra jafnvægi milli sveigjanleika og hagkvæmni.

Sjáðu Dell Pro Max GB10 hjá Advania
404

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.