„Njósnir eru forgangur númer eitt, tvö og þrjú“
Frá árinu 2023 hafa flestir árásarhópar á vegum ríkja fært áhersluna frá því að eyðileggja kerfi yfir í að safna upplýsingum. Þetta segir Bryndís Bjarnadóttir, sérfræðingur í netöryggi hjá CERT-IS og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, í viðtali í hlaðvarpinu Tæknital.
Í þættinum ræðir hún líka hvers vegna saga og stjórnmál skipta máli í netvörnum, reynslu Íslands af Locked Shields og hlutverk fyrirtækja í vörnum landsins. Guðmundur Arnar Sigmundsson, netöryggis- og gagnaþróunarstjóri Advania, stýrir þættinum að þessu sinni.
Bryndís er stjórnmálafræðingur og kom inn í netöryggi eftir óhefðbundinni leið. Hún lauk meistaranámi í öryggisfræðum við Georgetown-háskóla í Bandaríkjunum og hóf störf hjá CERT-IS í byrjun árs 2022, skömmu áður en innrás Rússa í Úkraínu gjörbreytti landslaginu. Hún hefur einnig starfað hjá NATO og vinnur nú á mótum netöryggis og fjölþáttaógna, þar sem hún sér meðal annars um æfingar.
Árásarhóparnir hegða sér ólíkt eftir því hvaðan þeir koma. Rússneskir hópar hafa fært sig yfir í njósnir, norðurkóreskir hópar eru þekktir fyrir að stela fé til að fjármagna ríki undir þvingunum og kínverskir hópar hafa komið sér fyrir í kerfum mikilvægra innviða, að því er virðist til að geta látið til skarar skríða síðar.
„Í dag eru njósnir forgangur númer eitt, tvö og þrjú hjá flestum árásarhópum.“
Bryndís segir netöryggi snúast um miklu meira en kerfi og kóða. Til að skilja hvers vegna ráðist er á einn innvið en ekki annan þarf að þekkja söguna og hagsmunina að baki. Hún nefnir netárás Írans á Albaníu sem dæmi, en hún á rætur að rekja til þess að Albanía tók við írönskum stjórnarandstöðuhópi.
„Þú getur ekki bara horft á yfirborðið. Þú verður oft að horfa lengra aftur í söguna til að skilja hvatann á bak við.“
Ísland hefur tekið þátt í Locked Shields, einni stærstu netvarnaræfingu heims, með Svíþjóð og síðar Noregi, og vann æfinguna einu sinni með Svíum. Undirbúningur fyrir 2027 er þegar hafinn. Bryndís segir smæðina geta verið styrkleika. „Það er meira traust hérna á Íslandi milli aðila, og önnur lönd öfunda okkur oft af því.“
Ólíkt hefðbundnum vörnum getur ríkið ekki borið eitt ábyrgð á netvörnum. Mikilvægir innviðir eru oft í eigu einkafyrirtækja og fæstir vilja að ríkið sitji inni í kerfum allra banka landsins. Fyrirtæki bera því ríka ábyrgð, ekki síst vegna þess að netárásir sjást ekki koma eins og herir við landamæri og það getur tekið mánuði að rekja hvaðan þær koma.
„Netglæpahópar eru ekkert annað en nýsköpun. Þeir sem verjast þurfa að vera jafn tilbúnir í nýjungar.“
Gervigreind mun vonandi hraða viðbragði, en Bryndís segir að alltaf þurfi manneskja að bera ábyrgð á ákvörðununum. Spurð hvað hún myndi breyta ef hún hefði fulla stjórn á málaflokknum er svarið skýrt:
Tæknital á Spotify„Ég myndi vilja fá fleiri stelpur í þetta. Það er mjög mikilvægt að hafa fjölbreytt fólk í þessum geira svo það hugsi mismunandi um hvernig á að verjast.“