„Stærsti styrkurinn okkar er líka mesti veikleikinn“
Íslenskt samfélag hefur komist af í krafti trausts. Fólk treystir hvert öðru og hjálpast að. Sama traust gerir okkur sérstaklega berskjölduð fyrir netsvikum. Þetta segir dr. María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur í tæknirétti við lagadeild Háskólans í Reykjavík, í nýjasta þætti hlaðvarpsins Tæknitals.
Í viðtalinu ræðir hún öryggismenningu í fyrirtækjum og á heimilum, sérsniðin svik í krafti gervigreindar og hvers vegna besta vörnin felst oft í einum auka andardrætti. Gunnar Smári Agnarsson netöryggisráðgjafi stýrir þættinum að þessu sinni.
María Rún er lögfræðingur að mennt og segist sjálf ekki vera sú sem kallað er í til að laga þráðlausa netið. Sérsvið hennar er hvernig lög og tækni tala saman. Hún starfaði í fimm ár hjá ríkislögreglustjóra að öruggri netnotkun og viðbrögðum við netbrotum og kom meðal annars að þróun tilkynningargáttar um netbrot. Í dag kennir hún tæknirétt við Háskólann í Reykjavík, í nánu samstarfi lagadeildar og tölvunarfræðideildar.
Hún hefur sjálf fundið fyrir því hvernig gervigreind hefur breytt svikunum. Í pósthólfið berast nú vandlega sérsniðnir póstar þar sem hún er ávörpuð sem prófessor, hrósað fyrir greinar sem hún hefur birt og beðin að líta á ferilskrá í viðhengi. Slíkum póstum til fólks í akademíu hefur fjölgað margfalt eftir að gervigreindartól urðu almennt aðgengileg.
„Það virkar líka í alvöru lífinu að sleikja fólk upp til að lækka varnirnar.“
Lögreglan fær líka mikið af tilkynningum þar sem traust fólks er nýtt, til dæmis með upptökum sem hljóma eins og barnabarn í vandræðum. María Rún segir þá sem standa að baki slíkum svikum vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera.
„Á sama tíma og það er stærsti styrkurinn okkar, þá er það mesti veikleikinn okkar.“
Í fyrirtækjum mótast öryggismenning af regluverki, stöðlum og stjórnendum sem setja línuna, en það er starfsfólkið sem bæði skapar öryggið og veikir það. María Rún bendir á að fólk sem passar sig vel í vinnunni slaki oft á um leið og það kemur heim. Þar mótast líka viðhorf barnanna til tækninnar. Þegar sonur hennar vildi stofna YouTube-reikning tíu ára gamall lét hún hann lesa alla skilmálana, skrifa samantekt og setja sér eigin reglur. Hann fékk reikninginn, en setti aldrei neitt inn á hann.
„Auðvitað er þetta öfgafullt. En við þurfum samt líka að taka hlutina alvarlega.“
Hraðinn er annar veikleiki. Þegar allir eru að flýta sér verða til óformlegar flýtileiðir, og það eru einmitt þær sem árásaraðilar nýta. Ráð Maríu Rúnar er einfalt: staðfestu beiðnir eftir annarri leið. Ef vinur biður um peninga á Messenger eða birgir vill breyta greiðsluupplýsingum, taktu upp símann og hringdu. Hún leggur þó áherslu á að þau sem verða fyrir netbrotum eigi enga sök á því.
Íslendingar eru góðir í að bregðast við, segir hún, hvort sem það er eldgos eða annað, en minna þjálfaðir í að koma í veg fyrir. Í netöryggi er ekkert verðmætara en forvarnir.
Tæknital á Spotify„Öryggi felst líka bara í því að anda aðeins ofan í magann.“