imageDescription
Netöryggi 25. nóvember, 2026 2 mín að lesa

Þegar netárásir eru framkvæmdar á vélahraða

Það eru áhugaverðir tímar í tölvubransanum. Innkoma gervigreindar hefur gjörbylt daglegu starfi okkar sem lifum og hrærumst í þessum heimi.

Við fylgjum enn sömu aðferðum, uppsetningum og ferlum, en allt gerist á mun meiri hraða en áður.

Það á einnig við um netárásir. Gervigreind hefur lækkað tæknilega þröskuldinn og nýlega hafa komið fram tól sem gera fólki með litla sem enga tækniþekkingu kleift að framkvæma fágaðar netárásir. Verk sem áður kröfðust tíma, sérfræðiþekkingar og handavinnu keyra nú sjálfvirkt gegn mörgum fórnarlömbum í einu.

Mörg þessara tóla flokkast ekki sem hefðbundin spilliforrit heldur sem opin verkfæri sem upphaflega voru ætluð til netöryggisprófana. Árásaraðilar hafa hins vegar tekið þau í notkun til að skipuleggja og framkvæma stórar netárásir. Þeir lýsa einfaldlega markmiði sínu á venjulegu mannamáli, til dæmis að finna leið inn í tiltekið umhverfi.

Viðbragðsglugginn er nú mældur í mínútum en ekki klukkustundum eða dögum. Það er því mikilvægt að þeir sem bera ábyrgð á stafrænum kerfum okkar allra búi sig sem best undir þessa nýju ógn.

En hvað er best að gera?

1. Loka augljósum inngönguleiðum

  • Tryggja að stjórnviðmót mikilvægra kerfa séu ekki aðgengileg af opnu interneti
  • Lágmarka snertiflöt annarra kerfa við opið internet
  • Tryggja að öll kerfi hafi fengið nýjustu hugbúnaðaruppfærslur og öryggisplástra

2. Herða auðkenningu og aðgangsstýringar

  • Tryggja að fjölþátta auðkenning (MFA) sé notuð á öllum aðgöngum
  • Nota vefveiðaþolna auðkenningu þar sem því verður við komið
  • Yfirfara notendur og fjarlægja úreltar aðgangsheimildir, líka í skýjaþjónustum
  • Yfirfara aðgangslykla (API) og auðkenni sem birgjar, verktakar og aðrir þriðju aðilar hafa fengið og afturkalla þau þegar verki er lokið

3. Tryggja vöktun og viðbrögð

  • Tryggja að netþjónar og annar viðkvæmur vélbúnaður séu með virka endavörn (e. endpoint detection and response, EDR) sem er stillt til að stöðva grunsamlega hegðun en ekki aðeins tilkynna um hana
  • Tryggja að virk atburðaskráning (e. logging) sé til staðar og rýna hvort óeðlilega margar innskráningartilraunir hafi átt sér stað
  • Koma upp virkri öryggisvöktun allan sólarhringinn (SOC/SIEM)

Uppfært 25. nóvember kl.18:36

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða.

Sjá nánar á Ísland.is