Dynamic 365 Business Central
Dynamic 365 Finance
Dynamics 365 Finance var áður kallað AX. Það er hluti af vegferð Microsoft til að gera fyrirtækjum kleift að tengja saman viðskiptaeiningar í skýinu. Lausnin sameinar Dynamics ERP og CRM í einni skýjaþjónustu með lausnarmiðuðum kerfishlutum. Dynamics 365 Finance heldur utan um helstu hlutverk fyrirtækja í rekstri; sölu, mannauð, markaðssetningu og þjónustu við viðskiptavini.
- Sérsniðnir reikningar og yfirlit i Office 365
- Minni rekstrarkostnaður
- Sjálfvirk reikningagerð sem hentar áskriftarþjónustum
Power Platform
Power Apps
Power Apps er sérlausnaumhverfi fyrir Microsoft lausnir á borð við Dynamics 365, Business Central, Teams, SharePoint og fleiri. Með Power Apps er auðvelt og fljótlegt að þróa öpp, rafræn eyðublöð og þjónustugáttir fyrir vef eða iOS og Android snjalltæki. Með Power Apps portals er hægt að hanna og gefa út vefsíður sem gefur utanaðkomandi aðilum, t.d. viðskiptavinum hjá öðru fyrirtæki, aðgengi að sameiginlegum gögnum og að hafa áhrif á hönnun.
Power Automate
Power Automate er fyrst og fremst öflug ferlalausn með yfir 300 tengingar við önnur kerfi. Án forritunarkunnáttu er hægt að þróa rafrænar samþykktir, sjálfvirka verkferla og láta gögn flæða á milli kerfa. Við mælum eð að skoða AI builder til viðbótar við Power Automate. Með AI builder færðu öflugt gervigreindartól sem nýtist við gagnagreiningu og til að spá fyrir um næstu skref í þínum viðskiptum. Sem áður fyrr þarf enga kunnáttu í gagnagreiningum eða forritun til að prófa sig áfram með AI builder.
Power Virtual Agents
Með Power Virtual Agents geta notendur útbúið spjallmenni með einföldum hætti án forritunarkunnáttu. Slíkum spjallmönnum er hægt að koma fyrir á innraneti, heimasíðu eða Facebook-síðu fyrirtækja. Þetta er frábær leið til að draga úr álagi vegna algengra fyrirspurna og þannig bæta þjónustu við viðskiptavini og starfsfólk.
Power BI
Að hafa góða yfirsýn yfir stöðu mála getur skipt miklu máli í ákvörðunartöku um rekstur fyrirtækja. Þar kemur PowerBI sterkt inn sem öflugt verkfæri til að útbúa mælaborð og skýrslur með einföldum hætti.