Blogg - 23. nóvember 2026

Fjólublá lækkun: lægra verð á Yealink og Jabra í vefverslun Advania

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Góðar fréttir fyrir alla sem vilja betri fundi: við höfum lækkað verð á öllum Yealink og Jabra vörum í vefverslun Advania. Hvort sem þig vantar ný heyrnartól fyrir teymið eða heildarlausn í fundarherbergið, þá hefur aldrei verið betri tími til að uppfæra.

Þessa dagana eru margar verslanir uppteknar af svörtum afsláttum sem koma og fara á einum degi. Við förum aðra leið og kynnum fjólubláa lækkun. Hún er ekki tímabundin tilboðsbóla heldur varanlega lægra verð.

Ástæðan er einföld. Hagstætt gengi og betri samningar við birgja skila sér beint til viðskiptavina okkar, og við sjáum enga ástæðu til að sitja á þeim ávinningi. Við vonum líka að þetta sé okkar litla lóð á vogarskálarnar í baráttunni við verðbólguna. Þegar kostnaður lækkar á verðið að fylgja með.

Yealink: allt í einu tæki, frá litlu næðisrými upp í stóra salinn

Yealink hefur á fáum árum orðið einn sterkasti framleiðandinn í fjarfundarbúnaði og MeetingBar línan sýnir vel af hverju. Myndavél, hljóðnemar og hátalari í einu tæki sem tengist skjánum, og fundarherbergið er tilbúið.

MeetingBar A25 er hugsuð fyrir minnstu rýmin: næðis- og huddle-herbergi fyrir 2 til 5 manns, með ofurvíðu 151° sjónarhorni og átta hljóðnema fylki með snjallri hávaðasíun. Fullkomin þegar borðið stendur upp við vegg og allir þurfa samt að sjást.

MeetingBar A40 tekur við í litlum og meðalstórum fundarherbergjum fyrir 5 til 12 manns. Hún sameinar myndir úr tveimur 48MP linsum og skilar skarpri mynd af öllu herberginu.

MeetingBar A50 er stóri bróðirinn fyrir meðalstór og stór herbergi, með þremur 50MP myndavélum og allt að 10 metra raddnæmi. Hún styður Microsoft Teams Rooms og Zoom Rooms og einnig að fólk tengi eigin tölvu.

Yealink A40 MTRoA AllinOne m/snertiskjá og hleðslu

MeetingBarA40 er nýjasta kynslóðin af all-in-one fjarfundarbúnaði. MTRoA með innbyggðri gervigreind á hljóði og mynd. Einfalt í uppsetningu og fullkomið í minni og millistór herbergi. Hleðslutæki fylgir til að hlaða tölvu þegar þú deilir skjá.

Yealink A40 MTRoA AllinOne m/snertiskjá og hleðslu

 

BH78: vinsælustu heyrnartólin frá Yealink

Það er ómögulegt að tala um Yealink án þess að nefna BH78, enda eru þetta vinsælustu heyrnartólin frá framleiðandanum. Það kemur ekki á óvart: fjórir hljóðnemar með gervigreindarhávaðasíun, hybrid ANC, stöðuljós, allt að 50 metra drægni og allt að 38 tíma taltími. Hljóðneminn er falinn og dreginn út þegar þarf, og tólin leggjast saman í tösku. Jafn heima á skrifstofunni og í flugvélinni.

Yealink BH78 with Stand USB-C/A

Yealink BH78 eru hágæða heyrnatól sem hönnuð eru fyrir krefjandi vinnuumhverfi, fjarfundi og vinnu án truflana. Með kristaltæru hljóði, háþróaðri ANC eyðingu hávaða og langri rafhlöðuendingu. Hleðslustandur fylgir.

Yealink BH78 with Stand USB-C/A

Jabra: danskt hljóðverkfræðiundur

Jabra þarf varla að kynna. Við erum með mikið úrval af frábærum fjarfundarbúnaði frá Jabra: Speak hátalarana sem breyta hvaða borði sem er í fundaraðstöðu, PanaCast línuna, allt frá PanaCast 20 vefmyndavélinni á skrifborðið upp í PanaCast 50 myndfundarstikuna fyrir stærri herbergi, og Evolve heyrnartólin sem hafa verið staðalbúnaður á skrifstofum um allan heim árum saman. Allt sem Jabra er þekkt fyrir: traust, einfalt og hljóð sem einfaldlega virkar.

PanaCast U30: litla fundarherbergið, leyst

Jabra PanaCast U30 er ný myndfundarstika fyrir minni fundarherbergi og huddle-rými fyrir allt að 6 manns. Hugmyndin er einföld: þú gengur inn, tengir eigin tölvu með einni USB-C snúru og byrjar fundinn í Teams, Zoom eða því kerfi sem þú notar. Skýrar leiðbeiningar bíða á skjánum áður en nokkur tengist, svo enginn þarf að hringja í tölvudeildina. Með Jabra Plus getur tölvudeildin svo fylgst með og uppfært öll herbergin á einum stað.

120° sjónarhorn tryggir að allir við borðið sjáist, og gervigreindin fylgir samtalinu og rammar inn þann sem talar hverju sinni. Sex hljóðnemar og innbyggður hátalari sjá svo um að allir heyrist, bæði í herberginu og hinum megin á línunni.

U30 er hrein BYOD lausn (bring your own device): fundurinn keyrir á tölvu notandans og herbergið leggur til myndavél, hljóðnema og hátalara. Það gerir hana fullkomna fyrir rými þar sem fólk notar mismunandi fundakerfi, gesti sem koma með eigin tölvu eða fyrirtæki sem vilja koma mörgum litlum herbergjum í gagnið án mikils tilkostnaðar.

Viltu frekar að herbergið sjálft sé fundartækið, með einum smelli á stjórnborðinu og fundinn beint úr dagatalinu? Þá er Microsoft Teams Rooms (MTR) svarið. Frá Jabra erum við með PanaCast 40 VBS, PanaCast 50 VBS og nýju PanaCast 55 VBS, sem allar keyra Teams Rooms á Android og koma með snertiskjá á borðið, og Yealink MeetingBar línan er sömuleiðis tilbúin í MTR. Það er engin ein rétt leið, og við hjálpum þér glöð að velja hvort BYOD eða MTR hentar hverju herbergi best.

Jabra PanaCast U30 4K myndfundabúnaður

Jabra PanaCast U30 er 4K myndfundabúnaður fyrir lítil fundarherbergi með allt að 6 manns. Býr með 132° sjónsviði, snjallri rammasetningu, 6 hljóðnemum og innbyggðum hátalara. USB-C plug-and-play tenging fyrir BYOD fundi. Ath. Borðstandur fyrlgir ekki

Jabra PanaCast U30 4K myndfundabúnaður

 

Evolve3: heyrnartól fyrir hvern vinnustíl

Nýjasta stjarnan hjá Jabra er Evolve3 línan, sem tekur við af hinni geysivinsælu Evolve2 línu. Hún hefur nú stækkað í fimm heyrnartól, því sá sem situr við skrifborðið allan daginn hefur aðrar þarfir en sá sem er á þeytingi milli funda, flugvalla og kaffihúsa.

Flaggskipin eru Evolve3 85 yfir eyrun og Evolve3 75 á eyrun. Stóra breytingin? Enginn hljóðnemaarmur. Í stað hans kemur Jabra ClearVoice, gervigreindartækni þjálfuð á yfir 60 milljón setningum úr raunverulegum aðstæðum, sem greinir röddina þína frá hávaðanum í kring. Rafhlaðan dugar í allt að 25 tíma í símtölum eða 120 tíma af tónlist, og 10 mínútna hleðsla gefur 10 tíma notkun. Evolve3 85 er líka 35% grennri og 23% léttari en Evolve2 85.

Og nýjustu fréttirnar: Evolve3 85 og 75 eru meðal fyrstu heyrnartólanna sem fá vottunina Certified for Microsoft Teams yfir Native Bluetooth LE Audio. Á mannamáli þýðir það að heyrnartólin tengjast beint við Bluetooth í Windows 11 tölvunni, án USB kubbs, og þú færð samt fulla Teams upplifun: áreiðanlega símtalsstýringu, samstillta lækkun á hljóðum, skýrari og breiðbandsmeiri rödd og stuðning við Teams Spatial Audio. LE Audio er líka sparneytnari á orku og öruggari Bluetooth tækni sem mun halda áfram að þróast. Fyrir tölvudeildina er þetta jafn einfalt: styðji tölvan ekki LE Audio virka heyrnartólin áfram með hefðbundnu Bluetooth, og USB kubburinn fylgir alltaf með.

Við bætast þrjú ný heyrnartól:

Evolve3 65 Flex er fyrir þau sem eru alltaf á ferðinni. Samanbrjótanleg, án hljóðnemaarms, með betri raddtöku utandyra og vindsíun, og allt að 16 tíma taltíma. Passar í litla tösku eða jafnvel vasann.

Evolve3 65 er sjálfgefna valið fyrir opin og hávær vinnurými. Aðlögunarhæft ANC, þriggja hljóðnema ClearVoice og armur sem má setja hvorum megin sem er: lyftu honum upp til að slökkva á hljóðnemanum. Allt að 31 tími í símtölum.

Evolve3 45 er léttust í línunni, um 100 grömm, og hugsuð fyrir þau sem eru mest við skrifborðið, hvort sem er á skrifstofunni eða heima. Allt að 21 tími í símtölum.

Öll heyrnartólin í línunni eru með ANC sem virkar líka í símtölum, ekki bara á milli þeirra, eru vottuð fyrir Teams, Zoom og Google Meet, tengjast tölvu og síma samtímis og eru með útskiptanlegar rafhlöður og eyrnapúða sem lengja líftímann. Tímarnir þegar allir fengu sömu heyrnartólin eru liðnir.

Jabra Evolve3 75, MS, Link390c, Warm Gray

Nýjasta línan af heyrnatólum frá Jabra, Evolve 3 heyrnatólin eru mjög létt og úr mjúku efni á púðunum sem gerir þau einstaklega þægileg. Fullkomin heyrnatól fyrir bæði fundi og tónlist. Hægt að fá í svörtum og gráum lit. Koma með flottri tösku.

Jabra Evolve3 75, MS, Link390c, Warm Gray

Besta tæknin á besta verðinu

Það gerist ekki á hverjum degi að nýjasta tæknin og lægra verð haldist í hendur. Núna gera þau það. Hvort sem þig vantar ný heyrnartól fyrir teymið, vilt koma litla fundarherberginu loksins í gagnið eða ert að setja upp Teams Rooms í stóra salnum, þá er þetta rétti tíminn.

Aðrir mega eiga svarta daginn. Við bjóðum fjólubláa lækkun, og hún er komin til að vera. Nú er tækifærið til að hoppa á bestu tæknina á besta verðinu.

Klár í að uppfæra?

Kíktu í vefverslun Advania og skoðaðu nýju verðin á Yealink og Jabra. Ertu ekki viss hvaða lausn hentar þínu fundarherbergi? Hafðu samband og við hjálpum þér að finna rétta búnaðinn.

Fleiri fréttir

Blogg
23.11.2026
Góðar fréttir fyrir alla sem vilja betri fundi: við höfum lækkað verð á öllum Yealink og Jabra vörum í vefverslun Advania. Hvort sem þig vantar ný heyrnartól fyrir teymið eða heildarlausn í fundarherbergið, þá hefur aldrei verið betri tími til að uppfæra.
Fréttir
13.11.2026
Sigurður Gunnar Gissurarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptalausna Advania.
Fréttir
13.11.2026
Microsoft hefur tilkynnt um umfangsmikið rekstraratvik í Microsoft 365-þjónustum sínum sem hefur áhrif á notendur víða um heim. Truflunin hefur meðal annars áhrif á Microsoft Outlook og Exchange Online, en einnig geta komið upp vandamál við notkun á öðrum þjónustum Microsoft, svo sem Teams, SharePoint og Microsoft 365 Copilot.
Blogg
12.11.2026
Árásaraðili var fjóra daga frá tilkynningu PaperCut um veikleika að fyrsta innbroti. Dæmigert fyrirtæki er 43 daga að loka veikleika sem þegar er verið að nýta í árásum. Það bil verður ekki brúað með handavinnu.
Fréttir
09.11.2026
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins 2026 á Íslandi (e. Regional Partner of the Year).
Fréttir
09.11.2026
Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi, er verndari Mentorverkefnis FKA Framtíðar starfsárið 2026 til 2027. Verkefnið var formlega sett á sérstökum opnunarviðburði í höfuðstöðvum Deloitte þar sem Hildur flutti erindi.
Fréttir
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.