Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Fréttir, Power Platform - 6. nóvember 2026Næsta bylgja Power Platform í brennidepli
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Gestir fengu innsýn í hvernig hægt er að færa sig frá fyrstu skrefum með Copilot yfir í markvissa sjálfvirkni og lausnir sem byggja á öruggum gögnum og skýru verklagi. Upptakan af viðburðinum er nú komin á vefinn okkar.
Björn Guðmundsson, öryggisstjóri hjá RARIK, sagði frá vegferð RARIK og vinnu með erindreka og Viktor Steinarsson, deildarstjóri sjálfvirkni og gervigreindar hjá Advania, sýndi dæmi um hvernig íslensk fyrirtæki og stofnanir nýta Power Platform til að einfalda ferla og skapa virði
Högni Hallgrímsson, forstöðumaður sjálfvirkni og gervigreindar hjá Advania, fjallaði um þróun Power Platform og mikilvægi þess að nýta gervigreind þar sem hún skapar raunverulegt virði.