Fréttir - 26. febrúar 2025

Nýr forstjóri Advania – Hildur tekur við keflinu

Hildur Einarsdóttir er nýr forstjóri Advania á Íslandi, stærsta upplýsingatæknifyrirtækis landsins. Hún tekur við starfinu af Ægi Má Þórissyni, sem gegnt hefur starfinu í tæp tíu ár en tekur nú við lykilhlutverki í framkvæmdastjórn Advania-samstæðunnar.

Hildur er reynslumikill stjórnandi og leiðtogi. Fyrr í þessum mánuði lét hún af störfum sem framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs hjá Emblu Medical – áður Össuri – þar sem hún starfaði í 16 ár. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu á nýsköpun, stefnumótun og alþjóðlegum sölu- og markaðsmálum. Hún er rafmagns- og tölvuverkfræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í læknisfræðilegri verkfræði frá Imperial College London. Hildur hefur einnig lokið stjórnendanámi við Harvard Business School.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til þess að starfa fyrir jafn metnaðarfullt félag og Advania. Ég er full tilhlökkunar að kynnast nýjum samstarfsfélögum og þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem nýta sér lausnir og þjónustu Advania“ segir Hildur. „Upplýsingatækni er í gríðarlegum vexti og heldur áfram að gegna mikilvægu hlutverki víðsvegar í samfélaginu. Tækifærin til framþróunar eru óþrjótandi; á sviðum gervigreindar, stafrænnar þjónustu, sjálfbærni og net- og rekstraröryggismála svo örfá dæmi séu nefnd.“

Ægir Már setur upp nýjan hatt

Við ráðninguna stígur Ægir Már Þórisson úr forstjórastólnum og tekur að sér að leiða mannauðs- og vinnustaðamenningu félagsins þvert lönd og markaði. Starfsmenn Advania eru nú ríflega fimm þúsund talsins, á 53 starfsstöðvum í níu löndum.

„Uppgangur félagsins hefur verið ótrúlegur undanfarin ár og Advania er orðið stærsta óskráða upplýsingatæknifélag Evrópu, með ársveltu upp á 250 milljarða króna,“ segir Ægir. „Vöxturinn byggir alfarið á starfsfólkinu, vinnulaginu okkar og einstakri fyrirtækjamenningu. Í mínum huga er ekkert mikilvægara en að hlúa áfram að mannauðnum og búa svo um hnútana að fólk fái notið hæfileika sinna. Þannig heldur félagið okkar áfram að stækka og dafna um ókomna tíð. Ég hlakka svo sannarlega til þess að taka við nýju hlutverki.“

Um Advania á Íslandi:
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar á átta starfsstöðvum við að einfalda dagleg störf viðskiptavina með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum.

Fleiri fréttir

Blogg
08.06.2020
Spurningin er ekki lengur hvort það þurfi að breyta heldur hvernig eigi að umbreyta til að lifa af.
Blogg
25.05.2020
Mikið mæðir á stjórnendum og leiðtogum fyrirtækja og stofnanna á tímum óvissu, þar sem aðstæður eru síbreytilegar og tækniþróunin hröð. Þeir verða að átta sig á tækifærunum, geta stutt við nýsköpun og mótað sýn þrátt fyrir að ekki sé mögulegt að sjá endatakmarkið fyrir.
Fréttir
25.05.2020
Advania og HP hafa gert með sér samstarfssamning um að Advania hefji sölu á tölvubúnaði frá HP. HP er einn stærsti tölvuframleiðandi í heimi og nú fæst breið vörulína af far- og borðtölvum hjá Advania.
Fréttir
22.05.2020
Háskóli Íslands og ráðningahugbúnaðurinn 50skills, vinna nú saman að því að efla tengingu milli atvinnulífs og nemenda skólans. Samstarfið felur í sér að viðskiptavinir 50skills, margir af stærstu vinnustöðum landsins, geta nú auglýst störf sín með sjálfvirkum hætti á Tengslatorgi Háskóla Íslands.
Fréttir
14.05.2020
Ný tilkynningagátt um öryggisbresti var opnuð af samgönguráðherra í dag. Gáttin auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að tilkynna um öryggisatvik sem kunna að koma upp í þeirra rekstri.
Fréttir
11.05.2020
Berenice Barrios hefur verið ráðin til Advania til að stýra nýju sviði sem annast sölu og ráðgjöf á Microsoft-lausnum.
Fréttir
04.05.2020
Tekjur Advania á Íslandi numu 15,5 milljörðum króna á árinu 2019 og jukust um 2% á milli ára. Rekstrarhagnaður (EBIT) dróst saman um tæp 6%, fór úr 787 milljónum króna árið 2018 í 741 milljónir króna árið 2019. Heildar hagnaður af starfseminni árið 2019 var 486m á móti 557m árið 2018.
Fréttir
29.04.2020
Sigurgeir Þorbjarnarson hefur hafið störf hjá Advania til að leiða sókn fyrirtækisins á sviði fjarfunda- og samvinnulausna.
Fréttir
06.04.2020
Litlir kiðlingar komu í heiminn í Húsdýragarðinum í Reykjavík í síðustu viku. Garðurinn er lokaður vegna Covid 19 en hægt er að fylgjast með lífi kiðlinganna íbeinni útsendingu í Hægvarpi Advania.
Fréttir
31.03.2020
Eftir að samkomubann var sett á og fólk fór í stórum stíl að vinna heima, hafa fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tekið í notkun rafrænar undirskriftir. Þannig hefur fjöldi mála verið afgreiddur án þess að fyrirtæki og stofnanir fái viðskiptavini í hús til sín.
Fréttir
30.03.2020
Í ljósi aðstæðna á tímum COVID faraldurs viljum við vekja athygli á breytingum á opnunartímum móttöku og þjónustuborðs. Móttöku í Guðrúnartúni 10 hefur verið lokað og opnunartími þjónustuborðs verið styttur.
Fréttir
27.03.2020
Hægvarp Advania sýnir nú beint frá fjósinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem kálfarnir Mosi og Burkni dafna vel þessa dagana. Garðinum hefur verið lokað eftir tilskipun frá sóttvarnalækni vegna Covid19 en fólki gefst nú kostur á að fylgjast með lífi dýranna í beinni útsendingu úr vefmyndavél.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.