Helena Jónsdóttir var ein af fyrirlesurum Haustráðstefnu Advania í ár.

Fréttir - 29. september 2025

Upptaka frá veffundinum Samtalið mótar menninguna

Þriðjudaginn 30. september héldum við veffund í beinni útsendingu undir yfirskriftinni Samtalið mótar menninguna: Hvert er hlutverk stjórnenda í að byggja upp traust, tengsl og árangur? Guðríður Hjördís Baldursdóttir vörustjóri hjá mannauðslausnum Advania ræddi þar við Helenu Jónsdóttur framkvæmdastjóra hjá Mental ráðgjöf.

Upptakan er nú aðgengileg öllum sem skrá sig inn á viðburðinn. Innskráning er efst uppi í horninu hægra megin á viðburðarsíðunni.

Sterk vinnustaðamenning verður ekki til af sjálfu sér, hún mótast í daglegum samskiptum. Regluleg og markviss samtöl milli stjórnenda og starfsfólks skipta sköpum fyrir traust, tengsl og árangur.

Á veffundinum tókum við á móti Helenu Jónsdóttur, klínískum sálfræðingi og framkvæmdastjóra Mental, sem hefur á undanförnum árum stutt fjölmarga vinnustaði við að byggja upp heilbrigða og árangursríka menningu með virkum stjórnendatakti og reglulegum innlitum.

Helena deildi reynslu og lifandi dæmum úr starfi,  meðal annars frá Arnarskóla, þar sem innleiðing stjórnendatakts og reglulegra innlita skilaði ótvíræðum árangri. Þar jókst starfsánægja og traust til stjórnenda, upplifun starfsfólk af streitu minnkaði til muna og starfsfólki finnst nú mun auðveldara að viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Veffundinum var ætlað að sýna fram á hvernig einföld en markviss nálgun,  að setja samtalið og reglulegan stjórnendatakt í forgang, getur orðið eitt öflugasta verkfæri stjórnenda til að móta menningu vinnustaðarins og stuðja við bæði fólk og árangur.

Fleiri fréttir

Fréttir
03.09.2025
Í dag fer fram vefdagskrá Haustráðstefnu Advania. Vefráðstefnan er frí og opin öllum sem skrá sig.
Blogg
25.08.2025
Á vinnumarkaði þar sem kröfur um sveigjanleika, mannlega leiðtoga og sálfræðilegt öryggi aukast stöðugt, skiptir ekki lengur máli bara hvernig við tengjumst starfsfólki heldur einnig hversu reglulega.
Fréttir
24.08.2025
Haustráðstefna Advania fer fram 3. og 4. september. Fyrri ráðstefnudagurinn er á vefnum en seinni daginn fyllum við Silfurberg í Hörpu þar sem tuttugu fyrirlesarar stíga á svið.
Fréttir
22.08.2025
Innviðalausnir Advania selja og þjónusta vélbúnað af öllum stærðum og gerðum í upplýsingatækni. Nú hefur teymið eflst enn frekar með ráðningu þriggja sérfræðinga:
Fréttir
20.08.2025
Advania hefur fest kaup á Gompute, leiðandi fyrirtækis á sviði gervigreindarinnviða og reksturs ofurtölva (HPC).
Fréttir
13.08.2025
Haustráðstefna Advania fer fram í 31. skipti dagana 3.-4. september. Fjöldi sérfróðra erlendra og innlendra fyrirlesara stíga á svið hjá okkur í ár. Við leggjum áherslu á gervigreind, netöryggismál, sjálfbærni og nýsköpun.
Fréttir
08.07.2025
Advania á Íslandi hefur hlotið tilnefningu til Nordic Women in Tech Awards í ár í flokknum Samfélagsleg áhrif (e. Social Impact) fyrir aukinn stuðning við verðandi og nýbakaða foreldra á vinnustaðnum. Hundruð tilnefninga til verðlaunanna bárust í ár og Advania var sigurvegari á Íslandi í þessum flokki og verður því stoltur fulltrúi landsins í þessum verðlaunaflokki.
Fréttir
03.07.2025
Advania hefur tilkynnt um kaup á fyrirtækinu The AI Framework, þekktu sænsku ráðgjafafyrirtæki á sviði gervigreindar. The AI Framework hefur gríðarlega þekkingu og reynslu í að leiða og styðja við fyrirtæki og stofnanir á þeirra gervigreindarvegferð.
Fréttir
02.07.2025
Eftir mörg góð ár á Tryggvabrautinni höfum við hjá Advania flutt starfsstöð okkar á Akureyri í nýtt og glæsilegt húsnæði að Austursíðu 6, 3. hæð.
Blogg
26.06.2025
Yealink hefur kynnt til leiks nýja vörulínu sem er væntanleg til landsins nú í júlí og nýtir nýjustu tækni í gervigreind. Með nýju MeetingBoard Pro línunni og öðrum nýjungum frá Yealink tekur þú fundarherbergið þitt og fundarupplifunina á næsta stig.
Fréttir
25.06.2025
Ný heimsíða Rio Tinto á Íslandi hefur verið sett í loftið en hún nýtir Veva cms hönnunarkerfið og var þróuð af vefteymi Advania. Heimasíðan er hluti af stefnu fyrirtækisins um að bæta upplýsingagjöf og þjónustu við viðskiptavini og samfélagið.
Fréttir
11.06.2025
Advania vinnur að því ásamt NVIDIA að setja upp séríslenskt gervigreindarský, þjónustu sem tryggir íslensku atvinnulífi aðgengi að nauðsynlegu reikniafli til þess að knýja áfram aukna eftirspurn eftir gervigreindarvinnslum. Hérlent gervigreindarský takmarkar nauðsyn mikilla fjárfestinga fyrirtækja og stofnana á fyrstu stigum við innleiðingu og nýtingu gervigreindar, ásamt því að öryggi gagna verður að fullu tryggt.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.