Fréttir - 10. janúar 2024

Sylvía Rut nýr samskipta- og kynningarstjóri Advania

Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur verið ráðin til að stýra samskipta- og kynningarmálum Advania á Íslandi.

Sylvía Rut hefur undanfarið starfað sem upplýsingafulltrúi í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Áður starfaði hún um árabil í fjölmiðlum, síðast sem varafréttastjóri á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Sylvía Rut vann þar einnig að þáttagerð, þar á meðal við ljósmyndaþættina RAX Augnablik sem hlutu Edduverðlaunin árið 2021.

Sylvía Rut lauk B.A.-gráðu í félagsfræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands og M.A.-gráðu í fjölmiðlafræði frá Kaupmannahafnarháskóla.

Alls bárust ríflega áttatíu umsóknir um starfið.

„Í heimi upplýsingatækni sem er sífellt í þróun er það dýrmætt að hafa einstaklinga sem hafa bæði faglega þekkingu og hæfni til að miðla henni á skilvirkan hátt.  Það er því mikill akkur fyrir okkur að fá Sylvíu Rut til liðs við okkar teymi. Hennar víðtæka reynsla bæði af fjölmiðlun og í almannatengslum mun styrkja okkur og efla þekkingarmiðlun Advania“.

- Einar Örn Sigurdórsson, markaðsstjóri Advania

Fleiri fréttir

Blogg
08.06.2020
Spurningin er ekki lengur hvort það þurfi að breyta heldur hvernig eigi að umbreyta til að lifa af.
Blogg
25.05.2020
Mikið mæðir á stjórnendum og leiðtogum fyrirtækja og stofnanna á tímum óvissu, þar sem aðstæður eru síbreytilegar og tækniþróunin hröð. Þeir verða að átta sig á tækifærunum, geta stutt við nýsköpun og mótað sýn þrátt fyrir að ekki sé mögulegt að sjá endatakmarkið fyrir.
Fréttir
25.05.2020
Advania og HP hafa gert með sér samstarfssamning um að Advania hefji sölu á tölvubúnaði frá HP. HP er einn stærsti tölvuframleiðandi í heimi og nú fæst breið vörulína af far- og borðtölvum hjá Advania.
Fréttir
22.05.2020
Háskóli Íslands og ráðningahugbúnaðurinn 50skills, vinna nú saman að því að efla tengingu milli atvinnulífs og nemenda skólans. Samstarfið felur í sér að viðskiptavinir 50skills, margir af stærstu vinnustöðum landsins, geta nú auglýst störf sín með sjálfvirkum hætti á Tengslatorgi Háskóla Íslands.
Fréttir
14.05.2020
Ný tilkynningagátt um öryggisbresti var opnuð af samgönguráðherra í dag. Gáttin auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að tilkynna um öryggisatvik sem kunna að koma upp í þeirra rekstri.
Fréttir
11.05.2020
Berenice Barrios hefur verið ráðin til Advania til að stýra nýju sviði sem annast sölu og ráðgjöf á Microsoft-lausnum.
Fréttir
04.05.2020
Tekjur Advania á Íslandi numu 15,5 milljörðum króna á árinu 2019 og jukust um 2% á milli ára. Rekstrarhagnaður (EBIT) dróst saman um tæp 6%, fór úr 787 milljónum króna árið 2018 í 741 milljónir króna árið 2019. Heildar hagnaður af starfseminni árið 2019 var 486m á móti 557m árið 2018.
Fréttir
29.04.2020
Sigurgeir Þorbjarnarson hefur hafið störf hjá Advania til að leiða sókn fyrirtækisins á sviði fjarfunda- og samvinnulausna.
Fréttir
06.04.2020
Litlir kiðlingar komu í heiminn í Húsdýragarðinum í Reykjavík í síðustu viku. Garðurinn er lokaður vegna Covid 19 en hægt er að fylgjast með lífi kiðlinganna íbeinni útsendingu í Hægvarpi Advania.
Fréttir
31.03.2020
Eftir að samkomubann var sett á og fólk fór í stórum stíl að vinna heima, hafa fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tekið í notkun rafrænar undirskriftir. Þannig hefur fjöldi mála verið afgreiddur án þess að fyrirtæki og stofnanir fái viðskiptavini í hús til sín.
Fréttir
30.03.2020
Í ljósi aðstæðna á tímum COVID faraldurs viljum við vekja athygli á breytingum á opnunartímum móttöku og þjónustuborðs. Móttöku í Guðrúnartúni 10 hefur verið lokað og opnunartími þjónustuborðs verið styttur.
Fréttir
27.03.2020
Hægvarp Advania sýnir nú beint frá fjósinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem kálfarnir Mosi og Burkni dafna vel þessa dagana. Garðinum hefur verið lokað eftir tilskipun frá sóttvarnalækni vegna Covid19 en fólki gefst nú kostur á að fylgjast með lífi dýranna í beinni útsendingu úr vefmyndavél.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.