- 28. apríl 2026

Varðaðu leið þína að innleiðingu á Copilot

Andri Már Helgason
Vörustjóri Power Platform

Varða er ný greiningarlausn frá Advania sem gefur stjórnendum og upplýsingatækniteymum heildstæða mynd af öryggi, aðgengi og raunverulegri áhættu í Microsoft 365 umhverfi sínu. Heildstæða mynd með skýrum niðurstöðum og forgangsröðuðum leiðum til úrbóta.

Microsoft 365 er orðið hjarta upplýsinga hjá flestum fyrirtækjum með vistun skjala, verkefnasvæðum og teymisvinnurýmum. Það sem kannski fæstir gera sér grein fyrir er að SharePoint og OneDrive er þungamiðja gagnageymslu fyrir þessar lausnir. Sú hraða þróun sem hefur fylgt notkun Microsoft 365 fylgir líka ákveðin áskorun: Hver hefur aðgang að hverju? Eru einhverjir veikleikar fyrir hendi? Hvað gerist þegar gervigreind eins og Copilot fær aðgang að þessum gögnum?

Af hverju skiptir Varða máli?

Í stað þess að treysta á tilfinningu, tilfallandi úttektir eða sundurleit gögn, skilar Varða einföldu og mælanlegu mati á stöðu umhverfisins. Varða greinir allt SharePoint  og OneDrive landslagið og setur niðurstöðurnar fram þannig að auðvelt er að taka upplýstar ákvarðanir.

Helstu kostir Vörðu eru meðal annars:

  • Minnkuð rekstrar- og öryggisáhætta
    Varða hjálpar til við að greina of víðtækar heimildir, ótrygga deilingu og ytri aðganga áður en þessi misbrestir verða að öryggisatviki.
  • Skýr stjórnendayfirsýn í einföldu formi
    Niðurstöður birtast meðal annars sem heildareinkunn (A+–F) og sýnileg forgangsröðun á helstu veikleikum, tækifærum og nauðsynlegum aðgerðum.
  • Stuðningur við regluvörslu og samræmi (compliance)
    Varða styður markvissa stefnumótun með tillögum sem geta tengst t.d. Purview, næmismerkingum (Sensitivity Labels) og DLP-stefnum, byggt á raunverulegri notkun og áhættu.
  • Tímasparnaður og betri forgangsröðun
    Með sjálfvirkri greiningu og tilbúnum aðgerðalista sparast bæði tími og kostnaður  sem styður ákvörðunartöku í stað ágiskana.

Hvað færðu með því að nota Vörðu?

Varða er hönnuð til að skila niðurstöðum sem nýtast bæði stjórnendum og sérfræðingum:

  • Auðlæsilegt PDF-yfirlit með:
    • heildarstöðu og áhættumati.
    • skýru yfirliti yfir stöðu umhverfisins.
    • forgangsröðuðum tillögum að aðgerðum.
  • Skýr mynd af gagnasafninu:
    • hvaða svæði eru virk, úrelt eða yfirgefin.
    • hvar vantar eigendur, ábyrgð og skýra stýringu.
  • Traustan grunn fyrir stefnumótun, t.d. fyrir:
    • Copilot innleiðingu.
    • upplýsingaöryggi.
    • áframhaldandi eftirlit og líftímastýringu gagna.

Copilot breytir leiknum

Af hverju þarf að yfirfara Microsoft 365 umhverfi áður en Copilot er innleitt?

Copilot getur aukið afköst og gæði vinnu þar sem Copilot vinnur ofan á gögnin sem fyrirtækið er þegar með og notandinn hefur aðgang að. En á sama tíma þýðir það einfaldlega að Copilot ýtir undir sýnileika og vitund notenda að aðgengi að gögnum, jafnvel viðkvæmum gögnum. Eitthvað sem notandinn hafði mögulega ekki vitneskju um fyrir.

Ef umhverfið inniheldur víðtækar heimildir (t.d. of stórir hópar með aðgang), óstýrða deilingu eða óljósa deilingartengla, gamlar síður án eigenda, viðkvæmar skrár á röngum stað, þá getur Copilot ýtt undir vitun notenda að aðgengi að slíkum upplýsingum.

Þetta er ekki endilega vegna galla í Copilot, heldur vegna þess að grunnstillingar, aðgangsstýringar og stillingar á deilingu gagna í Microsoft 365 umhverfinu eru ekki réttar.

Þess vegna er skynsamlegast að fara í markvissa greiningu og úrbætur áður en Copilot er virkjað þvert yfir fyrirtækið.

Hvernig nýtist Varða í Copilot innleiðingarferli?

Varða styður Copilot-innleiðingu á mjög hagnýtan máta með því að hjálpa fyrirtækjum að:

  • meta hvað í umhverfinu er örugg og hvar er áhætta.
  • forgangsraða þeim atriðum sem mestu máli til að draga úr áhættu og hvernig má ná árangri hratt.
  • loka á óæskilegt aðgengi að viðkvæmum gögnum áður en Copilot er víkkað út.
  • byggja upp sjálfbæra governance-stýringu þannig að árangur haldist til lengri tíma (ekki bara sem einkvæm aðgerð)

Í framkvæmd getur þetta falið í sér skref eins og:

  • endurskoðun aðgangsstýringa (hver sér hvað og af hverju).
  • stýringu ytri aðgangs og aðgengi gesta.
  • stýringu deilingartengla (t.d. færri víðtækir tenglar og meiri notkun á “Specific people”).
  • markviss innleiðing næmnismerkinga (Sensitivity lables) og DLP-reglna.
  • lífsferilsstjórnun svæða.
  • áfangaskipta Copilot-innleiðingu.

Af hverju ættir þú að kynna þér Vörðu?

Ef þörf er á að minnka áhættu, auka stjórn og yfirsýn, undirbúa örugga notkun Copilot og/eða byggja upp betri stýringu í Microsoft 365, þá er Varða skýr og mælanleg leið til að komast að settu marki. Með skýrri stöðugreiningu, einföldum stjórnendaskilaboðum og forgangsraðaðri aðgerðaáætlun eykur Varða öryggi í umhverfinu þínu.

Viltu fá nánari upplýsingar um Vörðu?

Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um Vörðu og hvernig greiningin getur stutt þína Copilot-vegferð.

Fleiri fréttir

Fréttir
27.02.2020
Ný vefverslun Ölgerðarinnar er í anda annarrar kynslóðar vefverslana, gagnadrifin og veitir viðskiptavinum betri yfirsýn. Vefverslunin er með þeim umfangsmeiri sem Advania hefur smíðað.
Blogg
21.02.2020
Það má vægast sagt búast við áhugaverðu ári í vefhönnun. Nú stöndum við á tímamótum þar sem tækni er í stöðugri þróun og vefsíður verða sífellt notendavænni og hraðvirkari. Kröfur notenda til vefsíðna eru einnig orðnar meiri en áður fyrr.
Fréttir
18.02.2020
Advania hefur keypt danska félagið Kompetera og opnar nú starfstöð í Kaupmannahöfn. Advania getur því boðið alhliða þjónustu í upplýsingatækni á öllum Norðurlöndunum.
Fréttir
13.02.2020
Stefan Johannes Van Nierop netkerfasérfræðingur Advania, hlaut á dögunum eina æðstu gráðu sem hægt er að fá frá Cisco. Stefan er nú einn af helstu sérfræðingum landsins á sviði þráðlausra netkerfa og tækni.
Fréttir
11.02.2020
Gervigreindarteymi Advania vinnur nú að því að búa til spjallmenni með gervigreind fyrir fyrirtæki og stofnanir. Fyrsta spjallmenni þessarar tegundar á Íslandi hefur þegar gefið góða raun hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Fréttir
07.02.2020
Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að veflausnir Advania eiga einn af þremur vefum sem tilnefndir eru til verðlauna á UT-messu SKÝ undir flokknum UT- fyrirtæki 2019.
Fréttir
06.02.2020
Margrét Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri ráðgjafar og sérlausna Advania.
Fréttir
22.01.2020
Hagvangur hefur samið um að nota hugbúnað frá 50skills til að auglýsa laus störf og vinna úr umsóknum. Advania er samstarfs- og þjónustuaðili 50skills á Íslandi.
Fréttir
14.01.2020
Rúmlega fimm hundruð viðskiptavinir og samstarfsaðilar Advania lögðu leið sína í nýárspartý fyrirtækisins sem haldið var á dögunum. Kröftug lægð kom ekki í veg fyrir að hlýleg stemning myndaðist í húsinu.
Blogg
13.01.2020
Unnið hefur verið að því að styðja viðskiptavini mannauðslausna Advania enn frekar í aðdraganda jafnlaunavottunar og er H3 vel í stakk búið til þess. Kerfið hentar vinnustöðum af öllum stærðum og gerðum, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði og tekur það jafnframt mið af starfsmati sveitarfélaga.
Blogg
10.01.2020
Nýlega var samið um styttingu vinnuvikunnar eins og hún er skilgreind í kjarasamningum. Hér er má lesa um útfærslumöguleika í viðveru og launakerfum.
Fréttir
10.01.2020
Advania hefur hingað til sérhæft sig í stafrænum lausnum. Með þeirri undantekningu að árlega brugga sérfræðingarnir sem vinna hjá fyrirtækinu, sérstakan bjór sem hlotið hefur nafnið Ölgjörvi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.