Blogg - DD.08.YYYY

Ísland er eftirbátur í aðgengi að upplýsingatækni

Um samfélagslega ábyrgð og ávinning samfélagsins af aðgengilegri upplýsingatækni.

Það þýðir ekkert að fara Hægt og hljótt í aðgengisumræðuna. Best að halda áfram með látum þar sem frá var horfið. Ég var búinn að fjalla um að gott aðgengi er góður bissness en þeirri grein var ætlað að vera gulrótin en nú er kominn tími á það sem kalla mætti prikið. Ég vona samt að Þú og þeir hafi ekki gleymt aðgengismálunum í fjarveru minni, en ég á líf og undanfarið ár hef ég staðið í stórræðum í verkefnum sem tengjast aðgengismálum:

Nýjasta verkefnið er að reyna troða öllu því sem ég hef um aðgengismál að segja í tuttugu og fimm mínútna fyrirlestur á Haustráðstefnu Advania. Þeir sem lesa bloggin mín vita að það er ekki auðvelt. Þegar erillinn er mikill þá verður manni ljóst að tíminn líður hratt á gervihnattaöld. Svo er mikilvægt að hugsa um fjölskylduna en heimasætan hér heitir einmitt Nína. Ætli það sé tilviljun?

Nú vil ég undirstrika samfélagslega ábyrgð og ávinning samfélagsins af aðgengilegri upplýsingatækni. 

Aðgengi að upplýsingum er grundvallarmannréttindi

Fjórða, níunda og tuttugasta og fyrsta grein Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland undirritaði þann 30. mars, 2007 kveður á um réttindi fatlaðra að aðgengi að opinberri þjónustu. Áhersla er lögð á rétt allra til aðgengis að upplýsingum og upplýsingatækni. Ef þjónusta, rafræn þjónusta þar með talin, mismunar fólki jafngildir það mannréttindabrotum og skapar lagalegan grundvöll til lögsóknar innan þeirra ríkja sem fullgilt hafa samninginn.

Ísland langt á eftir 

Þó Ísland hafi skrifað undir samninginn fyrir 7 árum hefur fullgilding hans látið á sér standa. Ísland er því á eftir löndum á borð við Namibíu, Íran og Írak en þessi lönd hafa, ásamt meira en 100 öðrum, fullgilt samninginn. Grundvöllur til málsókna vegna aðengisleysis er því til staðar í flestum nágrannalöndum okkar. Vonir standa til að Ísland innleiði samninginn í ár. 

Mikilvægi rafrænnar þjónustu

En því skiptir aðgengi að rafrænni þjónustu svona miklu? Um heim allan leitar hið opinbera leiða til að hagræða og lækka kostnað án þess að skerða þjónustu. Notendur fá að mörgu leyti betri þjónustu með rafrænum hætti enda er slík þjónusta til staðar hvenær og hvar sem séu menn nettengdir. Fyrir þá sem veita þjónustuna er rafræn þjónusta góður kostur enda má lækka kostnað verulega með henni. Frá  árinu 2012 hefur danska ríkið fært ýmsa þjónustu t.d. tilkynningar um flutninga, umsóknir um skilríki og umsóknir um samfélagsþjónustu yfir í rafræna sjálfsafgreiðslu. Frá og með 1. desember 2015 verður aðeins hægt að sækja um 80 gerðir opinberrar þjónustu á rafrænan máta nema sótt sé um undanþágu. Danir búast við að yfir 80% allra umsókna fari í gegnum rafræna sjálfsafgreiðslukerfið og að árlegur sparnaður verði um 900 milljónir danskra króna eða u.þ.b. 18 milljörðum íslenskra króna. Þá er innleiðingakostnaður tekinn með.

Mynd: áætlaður kostnaður per erindi

Afgreiðslumáti Kostnaður á skiptið (í evrum)
Afgreiðsla á skrifstofu 14
bréfpóstur 11,7
tölvupóstur 11
símaafgreiðsla 7,8
rafræn sjálfsafgreiðsla 4,2

Gott aðgengi fatlaðra að rafrænni þjónustu ryður úr vegi aðgengisvandamálum tengdum almenningssamgöngum og byggingum. Slæmt aðgengi að rafrænni þjónustu þýðir á hinn bóginn að stór hópur notenda útilokast nær alveg. Danir hafa áttað sig á þessu og leggja áherslu á greitt aðgengi að sjálfsafgreiðslunni. Ísland hefur allt sem þarf til að innleiða svipaðar lausnir í hagræðingarskyni. Það er mikilvægt að ef og þegar farið verður út í rafræna sjálfsafgreiðslu hér á landi verði aðgengi tryggt á öllum stigum.

En er þetta ekki dýrt og ógerlegt?

Markmið með góðu aðgengi er að veita fólki tækifæri til þess að láta drauma sína um menntun, störf, frægð og frama rætast. Atvinnuþátttaka og menntunarstig fatlaðra er lægra en gengur og gerist sem er dýrkeypt fyrir fatlaða og samfélagið allt. Áströlsk skýrsla um þjóðfélagslegan ávinning af aukinni þátttöku fólks með fötlun sem gerð var af Deloitte fyrir samtökin "Australian Network on Disabilities" sýndi að með því að auka atvinnuþátttöku fatlaðra úr 54% upp í 64% myndi þjóðarframleiðsla Ástrala vaxa um u.þ.b. 43 milljarða þarlendra dollara. Evrópskar rannsóknir benda til að beinn og afleiddur samfélagslegur ávinningur af fullu aðgengi að rafrænum upplýsingum og þjónustu með aukinni samfélagsþátttöku fólks með fötlun sé gríðarlegur, eða um 413 milljarðar evra. Kostnaður fyrir einstakar stofnanir og fyrirtæki getur þó orðið umtalsverður, eða á bilinu 6 til 16% af heildarútgjöldum, allt að 3 milljörðum Evra. Hins vegar ber að hafa í huga að kostnaður við aðgengisútfærslur er talin innan við 3% af heildarkostnaði verkefna ef hugað er að aðgengi frá upphafi (meira um það síðar). 

Skylda stjórnvalda að bæta aðgengi

Það er skylda stjórnvalda að berjast fyrir bættu aðgengi að upplýsingum, einkum á vefsvæðum, í öppum og rafbókum. Sé rétt haldið á málum felur það í sér mikinn ábata fyrir fatlaða og samfélagið í heild sinni. Stjórnvöld verða að hafa mannréttindi, hagræðingu og hagvöxt til hliðsjónar við ákvarðanatöku og stefnumótun. Hagsmunasamtök fatlaðra vona að aðgengi verði þar lykilatriði enda bendir allt til þess að það uppfylli öll þessi skilyrði eins og fyrr er getið.

Hver er staðan á Íslandi?

Þrátt fyrir stefnuyfirlýsingar sem hljóma vel hefur aðgengi vefsvæða opinberra stofnanna á Íslandi ekki batnað mikið á síðustu árum og er almennt talsvert langt frá þeim markmiðum sem stefnt er að. Af þeim hundruðum milljóna króna sem ríkið hyggst setja í uppbyggingu upplýsingatæknisamfélags á næstu þremur árum fara að óbreyttu heilar núll krónur í að bæta aðgengi fólks með fötlun að upplýsingatækninni. Gleymum því ekki að um 10 til 15% þjóðarinnar gæti hagnast á því, og sá hópur fer stækkandi með hækkandi meðalaldri. Aðgengismálum á Íslandi er því miður ekki gert nógu hátt undir höfði en ef dæma má af rannsóknum og reynslu nágrannaþjóða okkar má búast við því að breytingar séu í vændum. Það er því  mikilvægt fyrir þá sem þróa vef-og hugbúnaðarlausnir fyrir opinbera geirann að skoða þessi mál gaumgæfilega og byrja strax í dag.

Blogg næstu viku

Næst fjalla ég um aðgengislöggjöf og málsóknir tengdu aðgengi í helstu viðskiptalöndum okkar. Einnig verður farið yfir líkurnar á því að slík löggjöf taki gildi hér á landi á komandi misserum. Ég treysti því að þið séuð tilbúin í a.m.k. eitt blogg enn.

 

 

Fleiri fréttir

Blogg
11.06.2024
Tilkynnt hefur verið að eldri innskráningarþjónusta og umboðskerfi Ísland.is mun loka 1. september 2024. Í ljósi þessara breytinga þurfa margir aðilar að finna nýja innskráningaþjónustu. Signet login er lausn sem gæti komið í stað þeirrar innskráningarþjónustu.
Fréttir
04.06.2024
„Regluleg samtöl eða innlit til starfsfólks skipta sköpum í því að stuðla að auknu trausti og opna á mikilvægar boðleiðir í samskiptum á milli stjórnenda og starfsfólks,“ segir Helena Jónsdóttir framkvæmdastjóri og stofnandi Mental ráðgjafar. Teymið á bak við mannauðslausnina okkar Samtal fékk Mental ráðgjöf með sér í lið til að útbúa sniðmát sem eiga að nýtast sem hagnýt verkfæri til aðstoðar stjórnendum og mannauðssérfræðingum okkar viðskiptavina.
Blogg
31.05.2024
Á dögunum vorum við svo heppin að fá til landsins sérfræðing frá höfuðstöðvum Yealink. Hann Lucian Liu er Senior Solution Architect hjá fyrirtækinu, og við höfum unnið mjög náið með undanfarin ár í tengslum við Yealink fjarfundabúnaðinn.
Fréttir
30.05.2024
„Liðsauki er þjónusta sem við bjóðum upp á og snýst í grófum dráttum um að fá auka hendur inn í verkefni sem eru í gangi hjá viðskiptavinum,“ segir Valeria Rivina Alexandersdóttir forstöðumaður hjá sérlausnasviði Advania.
Fréttir
27.05.2024
Á Nýsköpunarvikunni 2024 kynnti Advania nýja lausn sem  hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að ná utan um umhverfisþætti tengda sjálfbærniskýrslum og grænu bókhaldi. Lausnin hefur vinnuheitið Kolfinna.
Fréttir
23.05.2024
Advania Group hefur gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir árið 2023. Skýrslan er yfirgripsmikil og nær yfir alla samstæðuna. Skýrslan lýsir sameiginlegri stefnu Advania um sjálfbærni og framgangi hjá hvernig hverju landi fyrir sig að ná markmiðum sínum.
Fréttir
14.05.2024
Advania heldur úti hlaðvarpi í beinni útsendingu frá Nýsköpunarvikunni 2024, Iceland Innovation Week, í Kolaportinu miðvikudaginn 15. maí. Sýnt verður frá útsendingunni hér á vef Advania og á fréttavefnum Vísi frá 9:30 til 16:00.
Blogg
10.05.2024
Advania hefur um árabil verið ráðgefandi söluaðili á skjáum í öllum stærðum og gerðum hvort sem það er á skrifborðið, fundarherbergið eða í kennslustofuna.
Myndbönd, businesscentral.advania.is
23.04.2024
Fjölmennt var í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni á morgunverðarfundinum Nýjungar í Business Central. Einnig var sýnt var frá viðburðinum á starfsstöð okkar á Akureyri í gegnum streymi. Upptakan frá fundinum er nú aðgengileg hér á vefnum okkar.
Viðburðir
23.04.2024
Þann 6. maí næstkomandi heldur Advania námskeiðið Microsoft Copilot fyrir byrjendur. Um er að ræða fjarnámskeið og leiðbeinandi þess er Þóra Regína Þórarinsdóttir, sérfræðingur í gagnagreiningum. Námskeiðið spannar þrjár klukkustundir.
Blogg
19.04.2024
Það hefur vart farið fram hjá neinum sú umfjöllun um gervigreind og áhrifin sem hún mun hafa á atvinnulíf og samfélag. Fjölmörg fyrirtæki keppast nú um að fá sem mest úr gervigreind með því að þróa nýjar tæknilausnir en einnig betrumbæta lausnir sem eru nú þegar til og víða notaðar. Þetta á ekki síst við viðskiptatengslakerfi eða CRM kerfi.
Fréttir
18.04.2024
Áhugaverður morgunverðarfundur fór fram í höfuðstöðvum Advania og á starfstöðinni Akureyri þar sem rætt var um Z-kynslóðina á vinnumarkaði. Á fundinum Zérfræðingar framtíðarinnar - er þinn vinnustaður tilbúinn? var fjallað um þær áskoranir sem fylgja fyrir vinnustaði.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.