DJ Dóra Júlía. Mynd/Hörður Sveinsson

Fréttir - 16. september 2026

Skemmtilegustu samtölin eiga sér stað eftir ráðstefnu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Þegar aðaldagskrá Haustráðstefnu Advania lauk í Silfurbergi Hörpu fimmtudaginn 10. september var dagurinn ekki alveg búinn. Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi bauð gestum yfir á sýningarsvæði ráðstefnunnar í Norðurljósum í mat og drykk.

Þegar aðaldagskrá Haustráðstefnu Advania lauk í Silfurbergi Hörpu fimmtudaginn 10. september var dagurinn ekki alveg búinn. Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi bauð gestum yfir á sýningarsvæði ráðstefnunnar í Norðurljósum í mat og drykk. Kokteilboðið í lok ráðstefnu var í þetta skipti haldið í samstarfi við Fortinet, einn af aðalsamstarfsaðilum ráðstefnunnar.

Kokteilboðið er orðið fastur liður í lok ráðstefnudagsins og þjónar mikilvægum tilgangi. Þar gefst gestum tækifæri til að mynda tengsl þvert á fyrirtæki og atvinnugreinar og halda áfram samtalinu um erindi dagsins í rólegra umhverfi en ráðstefnusalurinn býður upp á. Svo gátu ráðstefnugestir kynnt sér betur bása sýningarsvæðisins og kafað enn dýpra í tækni og lausnir.  DJ Dóra Júlía sá um tónlistina líkt og síðustu ár.

Hörður Sveinsson ljósmyndari Advania fangaði stemninguna í Norðurljósum.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Fleiri fréttir

Fréttir
25.05.2020
Advania og HP hafa gert með sér samstarfssamning um að Advania hefji sölu á tölvubúnaði frá HP. HP er einn stærsti tölvuframleiðandi í heimi og nú fæst breið vörulína af far- og borðtölvum hjá Advania.
Fréttir
22.05.2020
Háskóli Íslands og ráðningahugbúnaðurinn 50skills, vinna nú saman að því að efla tengingu milli atvinnulífs og nemenda skólans. Samstarfið felur í sér að viðskiptavinir 50skills, margir af stærstu vinnustöðum landsins, geta nú auglýst störf sín með sjálfvirkum hætti á Tengslatorgi Háskóla Íslands.
Fréttir
14.05.2020
Ný tilkynningagátt um öryggisbresti var opnuð af samgönguráðherra í dag. Gáttin auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að tilkynna um öryggisatvik sem kunna að koma upp í þeirra rekstri.
Fréttir
11.05.2020
Berenice Barrios hefur verið ráðin til Advania til að stýra nýju sviði sem annast sölu og ráðgjöf á Microsoft-lausnum.
Fréttir
04.05.2020
Tekjur Advania á Íslandi numu 15,5 milljörðum króna á árinu 2019 og jukust um 2% á milli ára. Rekstrarhagnaður (EBIT) dróst saman um tæp 6%, fór úr 787 milljónum króna árið 2018 í 741 milljónir króna árið 2019. Heildar hagnaður af starfseminni árið 2019 var 486m á móti 557m árið 2018.
Fréttir
29.04.2020
Sigurgeir Þorbjarnarson hefur hafið störf hjá Advania til að leiða sókn fyrirtækisins á sviði fjarfunda- og samvinnulausna.
Fréttir
06.04.2020
Litlir kiðlingar komu í heiminn í Húsdýragarðinum í Reykjavík í síðustu viku. Garðurinn er lokaður vegna Covid 19 en hægt er að fylgjast með lífi kiðlinganna íbeinni útsendingu í Hægvarpi Advania.
Fréttir
31.03.2020
Eftir að samkomubann var sett á og fólk fór í stórum stíl að vinna heima, hafa fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tekið í notkun rafrænar undirskriftir. Þannig hefur fjöldi mála verið afgreiddur án þess að fyrirtæki og stofnanir fái viðskiptavini í hús til sín.
Fréttir
30.03.2020
Í ljósi aðstæðna á tímum COVID faraldurs viljum við vekja athygli á breytingum á opnunartímum móttöku og þjónustuborðs. Móttöku í Guðrúnartúni 10 hefur verið lokað og opnunartími þjónustuborðs verið styttur.
Fréttir
27.03.2020
Hægvarp Advania sýnir nú beint frá fjósinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem kálfarnir Mosi og Burkni dafna vel þessa dagana. Garðinum hefur verið lokað eftir tilskipun frá sóttvarnalækni vegna Covid19 en fólki gefst nú kostur á að fylgjast með lífi dýranna í beinni útsendingu úr vefmyndavél.
Blogg
26.03.2020
Netglæpamenn vita sem er að öryggisráðstafanir heimafyrir eru oft mun veikari en á skrifstofunni og sjá tækifæri í þessum aðstæðum.
Fréttir
13.03.2020
Vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar mun Advania færast á viðbúnaðarstigi 3 (hættustig) frá og með mánudeginum 16. mars samkvæmt ákvörðun viðbragðsteymis félagsins.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.