Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Fréttir - 13. nóvember 2026Sigurður Gunnar er nýr framkvæmdastjóri hjá Advania
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Sigurður Gunnar Gissurarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptalausna Advania.
Hann kemur til Advania frá Emblu Medical (áður Össur) þar sem hann hefur gegnt stjórnunarstörfum á sviði sölu, markaðsmála, vörustýringar og rekstrar, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum síðastliðin 20 ár.
Áður starfaði Sigurður hjá Tæknivali, fyrst sem viðskiptastjóri og síðar sem forstöðumaður tækniþjónustu. Þar leiddi hann teymi sem þjónustuðu fyrirtæki á sviði upplýsingatækni og fjarskipta. Sigurður er með BSc-gráðu í tæknifræði og meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun (M.Sc. BA) frá SydDansk Universitet.
„Viðskiptalausnir byggja á einstaklega öflugu og framsæknu teymi sem vinnur náið með okkar viðskiptavinum að lausnum sem henta þeirra viðskiptaumhverfi og þörfum. Við sjáum gríðarleg tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir í þeirri framþróun sem er að eiga sér stað í nýtingu gervigreindar víðs vegar í rekstrinum og í lykilkerfum og það er því gleðilegt að fá Sigurð til liðs við okkur á þessum tíma. Hans mikla reynsla og sterka viðskiptalega sýn mun án efa styðja okkar viðskiptavini í að nýta þessi tækifæri til fulls,“ segir Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi.
Framkvæmdastjórn Advania skipa:
Auður Inga Einarsdóttir: Framkvæmdastjóri Innviðalausna
Erna Björk Sigurgeirsdóttir: Framkvæmdastjóri Fjármála, mannauðs & samskipta
Hafsteinn Guðmundsson: Framkvæmdastjóri Rekstrarlausna
Hildur Einarsdóttir: Forstjóri
Sigurður Gunnar Gissurarson: Framkvæmdastjóri Viðskiptalausna
Sigrún Ámundadóttir: Framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna